Kraftur flytur starfsemi sína í Hafnarfjörð

Framkvæmdastjóri Krafts segir að fyrirtækið stækki um leið og það færi starfsemi sína. Horft er til þess að starfsfólki fjölgi úr 25 í 40.

Kristinn Þór Geirsson, framkvæmdastjóri Krafts, og Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Kristinn Þór Geirsson, framkvæmdastjóri Krafts, og Valdimar Víðisson bæjarstjóri. Mynd/Hafnarfjarðarbær

Fyrirtækið Kraftur hefur fest sér lóð undir starfsemi sína að Álhellu 9 í Hafnarfirði og ætlar að flytja starfsemi sína þangað. Stefnt er á að fyrirækið hefji starfsemi að Álhellu í september á næsta ári.

Fram kemur að Kraftur, sem hefur umboðið fyrir MAN á Íslandi og Palfinger-krana, hafi þegar hafið byggingarframkvæmdir á lóð sinni í Hafnarfirði. Nýtt húsnæði fyrirtækisins verður 2.600 fermetrar; blanda af verkstæði, lager, sýningasal og starfsmannaaðstöðu.

„Fyrirtækið hefur ritað undir samstarfsyfirlýsingu um að efla samstarf sitt við bæinn,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að á nýju ári komi Kraftur til með að opna á nýjum stað, en það verði jafnframt sextugasta afmælisár fyrirtækisins. Flutningurinn nái til höfuðstöðva fyrirtækisins og starfsemi þess.

„Það er okkur í Hafnarfirði mikið gleðiefni að fyrirtæki eins og Kraftur kjósi að flytja starfsemi sína hingað. Með því skapast fjölbreytt atvinnutækifæri, aukin verðmætasköpun og styrking á atvinnulífi bæjarins,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar.

Sameiginleg markmið Krafts og Hafnarfjarðarbæjar eru sögð vera að:

  • Stuðla að farsælum flutningi, aðlögun og uppbyggingu starfseminnar í bæjarfélaginu
  • Skapa jákvæðar forsendur fyrir frekari atvinnuuppbyggingu á nærliggjandi svæðum
  • Tryggja snyrtilegt og vandað umhverfi í tengslum við starfsemi fyrirtækisins
  • Byggja upp gagnkvæmt traust og samstarf til framtíðar

Kristinn Þór Geirsson, framkvæmdastjóri Krafts, segir stefnt að því að hefja starfsemi að Álhellu 9 í september á næsta ári, en fyrirtækið hafi horft til lóðarinnar í þónokkurn tíma.

„Við þurfum rúmgóða lóð sem hefur gott úti- og athafnasvæði og komum okkur nú fyrir á gífurlega vaxandi athafna- og iðnaðarsvæði.“

Hann segir Kraft stækka mikið við flutninginn og horfi til þess að fjölga starfsfólki úr 25 í 40.

„Við erum spennt fyrir komandi tímum enda mikil tímamót framundan.“

Fram kemur að Kraftur hafi alla sína áratugi verið umboðsaðili fyrir MAN á Íslandi og bjóði upp á mikið úrval vörubíla og rúta. Þá reki fyrirtækið einnig öfluga þjónustu-, verkstæðis- og varahlutadeild.