Erlend netverslun í ágúst var 8,52 prósentum meiri en í sama mánuði 2024. Aukning milli júlí og ágúst á þessu ári var 3,14 prósent.
Þetta kemur fram á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) sem birt hefur tölu um erlenda netverslun ágústmánaðar á vef sínum, veltan.is
„Enn er fataverslun stærsti hluti erlendrar netverslunar og nemur fataverslun úr erlendum netverslunum í ágúst rúmum milljarði,“ segir á vef RSV.
