Vinnumálastofnun spáir auknu atvinnuleysi

Í síðasta mánuði mældist mest atvinnuleysi á landinu á Suðurnesjum, 5,6 prósent, en minnst á Norðurlandi vestra, þar sem það var 0,9 prósent.

Byggingarkrani.
Byggingarkrani. Mynd/ÓKÁ

Skráð atvinnuleysi í september var 3,5 prósent og jókst um 0,1 prósent frá fyrra mánuði, að því er fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Aukning milli ára er hins vegar 0,2 prósent því atvinnuleysi mældist 3,3 prósent í september 2024.

Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi aukist í október og verði á bilinu 3,6 til 3,7 prósent. Sagt er líklegt að fall Play hafi áhrif á atvinnuleysi næstu mánaða og að það aukist umfram fyrri spár á síðari hluta árs 2025.

Stofnunin segir að 7.348 hafi að meðaltali verið atvinnulausir í september, 4.250 karlar og 3.098 konur. Dregið hafi úr meðalfjölda atvinnulausra um 56 manns milli mánaða. Í lok mánaðarins voru 7.841 án vinnu, 4.482 karlar og 3.359 konur.

Þá segir að Vinnumálastofnun hafi í september gefið út 322 atvinnuleyfi til erlendra ríkisborgara, þar af 285 á höfuðborgarsvæðinu.

Mynd/Vinnumálastofnun