Stjórnir Skaga hf. og Íslandsbanka hf. hafa samþykkt að hefja formlegar samrunaviðræður. Fram kemur í tilkynningu. félaganna til Kauphallar að skilmálaskjal þess efnis hafi verið undirritað af hálfu beggja aðila.
Skagi er móðurfélag tryggingafélagsins VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa. Í tilkynningu Íslandsbanka kemur fram að Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, verði bankastjóri sameinaðs banka.
„Í viðræðum um sameiningu félaganna er lagt til grundvallar að hluthafar Skaga eignist 323.859.440 nýja hluti í Íslandsbanka sem jafngildir um 15% hlut í sameinuðu félagi. Það endurspeglar viðskiptagengið 21,18 krónur á hvern hlut í Skaga og 124,00 krónur á hlut fyrir Íslandsbanka,“ segir í kauphallartilkynningu.
Verði leiðandi á fjármálamarkaði
Félögin eru sögð sjá mikið virði í sameiningu þeirra með því að innleiða samþætt viðskiptamódel sem miði að styrkleikum beggja félaga.
„Sameinað félag verður leiðandi á banka- og tryggingamarkaði auk þess sem samruninn býr til öflugri fjárfestingarbanka- og eignastýringarstarfsemi með fjölmörg tækifæri til frekari sóknar.“
Sameinuð eru félögin sögð geta sótt enn sterkar fram á öllum sviðum fjármálaþjónustu. Þau séu vel í stakk búin til að leiða frekari þróun á fjármálamarkaði.
Til staðar séu skýr tækifæri til að auka þjónustu við viðskiptavini, auka arðsemi með hagkvæmari fjárhagsskipan og auknum umsvifum í eigna- og sjóðastýringu sem myndist við samrunann.
„Þá er ávinningur talinn felast í samlegð af samrunanum, en bein árleg samlegð er metin á bilinu 1,8 – 2,4 milljarðar króna.“
Í tilkynningu Skaga er það sagt mat stjórnar félagsins að um sé að ræða hagfelld viðskipti fyrir hluthafa Skaga og að þau séu í takti við stefnu Skaga um að vera þátttakandi í þróun á fjármálamarkaði.
„Það er mat stjórnar að sameiningin muni renna frekari stoðum undir aukna arðsemi sameinaðs félags. Þá mun sameinað félag búa yfir verulegu umfram eigin fé sem skapar frekari tækifæri til vaxtar.“
Að sama skaði segir í tilkynningu Íslandsbanka að stjórn bankans telji um hagfelld viðskipti að ræða fyrir hluthafa bankans og í samræmi við stefnu hans um arðbæran vöxt.
„Með þeim eykst fjölbreytni í tekjumyndun bankans og vægi þóknanatekna eykst. Til viðbótar er gert ráð fyrir að fyrirhugaðar breytingar á eiginfjárkröfum fjármálafyrirtækja með innleiðingu CRR3 muni leiða til hagkvæmari nýtingar eigin fjár.“
Samanlagt sé því mat Íslandsbanka að sameiningin muni renna frekari stoðum undir aukna arðsemi sameinaðs félags. Þá búi sameinað félag áfram yfir verulegu umfram eigin fé sem skapi frekari tækifæri til vaxtar.
Gert er ráð fyrir að nánari viðræður um skilmála og útfærslu samruna Íslandsbanka og Skaga fari fram á næstu vikum. Fjármálafyrirtækin segja að nánar verði upplýst um framvindu viðræðna eftir því sem ástæða sé til og í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu félaganna.
Kauphallartilkynningar fjármálafyrirtækjanna má nálgast HÉR og HÉR.