Spá óbreyttum stýrivöxtum Seðlabanka Íslands

Greining Íslandsbanka segir að útlit sé fyrir óbreytta stýrivexti fram undir næsta vor og svo hæga vaxtalækkun eftir það.

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands. Mynd/Google Earth

Greiningardeildir bæði Íslandsbanka og Landsbankans spá því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi stýrivöxtum óbreyttum. Tilkynnt verður um vaxtaákvörðun bankans næstkomandi miðvikudag.

Stýrivextir standa nú í 7,50 prósentum og raunstýrivextir í 3,4 prósentum ef tekið er mið af liðinni verðbólgu, að því er segir í nýrri Hagsjá Landsbankans.

„Seigla í eftirspurn, þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar munu vega þyngra en lítill hagvöxtur og minnkandi spenna á vinnu- og íbúðamarkaði,“ segir í spá Greiningar Íslandsbanka.

Þá segir í Hagsjá Landsbankans breytingar sem orðið hafi á ólíkum undirliðum verðbólgunnar eigi sér því flestar einfaldar skýringar aðrar en að vera merki um breytingar í undirliggjandi verðþrýstingi í hagkerfinu. 

Greining Íslandsbanka segir að útlit sé fyrir óbreytta stýrivexti fram undir næsta vor og svo hæga vaxtalækkun eftir það.

Nánari greiningu á stöðunni er að finna í Hagsjá Landsbankans og nýrri stýrivaxtaspá Íslandsbanka.