Segja einkaneyslu áfram driffjöður hagvaxtarins

Spáð er auknu atvinnuleysi og raunverðslækkunum á húsnæðismarkaði á næsta ári í nýrri efnahagsspá Arion banka. Um leið dragi úr verðbólguþrýstingi, að því gefnu að veiking krónu leggi ekki stein í götu verðhjöðnunar.

Arion banki og efnahagsspá.
Samsett mynd

Í nýrri efnahagsspá Arion banka er gert ráð fyrir að „þjóðarskútan haldi til hafs á ný“ eftir samdrátt síðasta árs. Innlend eftirspurn, með einkaneyslu í broddi fylkingar, er sögð hafa verið atkvæðameiri en áður hafi verið reiknað með og komi til með að halda hlutverki sínu sem driffjöður hagvaxtar.

„Jafnvel þó verulegur innflutningur í tengslum við gagnaver og uppbyggingu landeldis eigi stóran þátt í neikvæðu framlagi utanríkisverslunar í ár, liggur í augum uppi að útflutningshorfurnar hafa síst batnað; flugframboð til landsins hefur dregist snarpt saman, krónan er sterk og áfram er mikil óvissa um efnahagsstefnu stærstu hagkerfa heims,“ segir í samantekt spárinnar.

Greiningardeild Arion segir útlit fyrir að innflutningur dragist saman á næsta ári. Sá samdráttúur skýrist fyrst og fremst af minni fjárfestingu gagnavera og því að utanríkisverslun leggist á sveif með einkaneyslunni.

„Þó útlit sé fyrir að einkaneyslan verði dráttarklár hagvaxtar út spátímann eru horfurnar þokukenndari en oft áður, þar sem verðbólgan hefur reynst treg í taumi og vextir því haldist háir lengur en áður var spáð.“

Þá segir að áhrif þessa á innlenda eftirspurn séu ekki enn komin fram að fullu, en sýnileg merki kólnunar sé að finna bæði á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði.

Greiningardeildin vænti þess að áhrif þétts taumhalds peningastefnunnar komi enn skýrar fram á næsta ári, í auknu atvinnuleysi og raunverðslækkunum á húsnæðismarkaði.

„Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott þar sem aukið atvinnuleysi dregur að öðru óbreyttu úr verðbólguþrýstingi.“

Þrátt fyrir að bankinn spái því að verðbólga verði yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans út spátímann megi eiga von á tveimur vaxtalækkunum á næsta ári og að stýrivextir verði komnir í 6,25 prósent undir blálok spátímans.

„Krónan, sem er mjög sterk um þessar mundir, gæti hins vegar lagt stein í götu verðhjöðnunar taki hún að veikjast verulega, en í þessari spá er gert ráð fyrir hógværri veikingu frá og með næsta ári.“

Sleginn er sá varnagli í spá bankans að eins og ávallt sé mikil óvissa um þróunina, ekki síst í alþjóðamálum.

Þannig séu ekki öll kurl komin til grafar varðandi vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum, en hvernig sem fari þá telji sérfræðingar bankans „að þjóðarskútan sé vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó.“

Fjalla um fall Play

„Ókyrrð í háloftunum“ er yfirskrift umfjöllunar bankans um áhrif falls Play á íslenskt efnahagslíf.

Bent er á að þrátt fyrir að tilkynningu um rekstrarstöðvun hafi borið brátt að, hafði staðið styr um rekstur félagsins í nokkurn tíma. Til að mynda hefði félagið kynnt breytt viðskiptalíkan fyrir ári síðan, sem falist hafi í að færa leiðarkerfið yfir í sólarlandaáætlun og fækka flugvélum er þjónustuðu Íslandsmarkað.

„Félagið hafði því þegar rifað seglin er kom að umsvifum á Keflavíkurflugvelli. Okkur reiknast til að undir lokin hafi hlutdeild félagsins í komum erlendra ferðamanna verið komin undir 10%. Til samanburðar er hlutdeild Icelandair ríflega 40%. Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti þar af leiðandi að vera takmarkað.“

Meðal áhrifa sem svo eru reifuð er að:

  • Rekstrarstöðvun Play muni hafa neikvæð áhrif á útflutta þjónustu, einkum í gegnum farþegaflutninga með flugi.
  • Að um 400 manns hafi misstvinnuna, en til samanburðar hafi 7.400 einstaklingar verið skráðir atvinnulausir í ágúst. Þá geti fjöldi afleiddra starfa einnig verið í húfi.
  • Að líklega muni draga úr utanlandsferðum Íslendinga, að minnsta kosti til skemmri tíma. Þá gæti rekstrarstöðvunin haft neikvæð áhrif á þjóðarsálina – eitthvað sem haglíkan eigi erfitt með að meta.
  • Minni samkeppni gæti jafnframt leitt til hækkunar flugfargjalda, sem hafi bein áhrif á verðbólguna

Alla spá Arion banka um efnahagshorfur 2025 til 2028 er að finna HÉR.