Milli ára fjölgaði gistinóttum á hótelum um 9,6 prósent í ágúst síðastliðnum. Á öllum gististöðum samtals var fjölgunin hins vegar 11,4 prósent samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi.
Lesa má úr samantektinni að gisting á hótelum og gistiheimilum er rúmur helmingur, eða 55 prósent, allra skráðra gistinátta í ágúst.
Fram kemur að á landsvísu hafi gistinætur á hótelum alls verið rúmlega 667 þúsund í ágúst, en á sama tíma í fyrra hafi þær verið tæplega 609 þúsund.
Þegar horft er til allra skráðra gististaða — þar sem undir eru hótel, gistiheimili, tjaldsvæði og önnur skráð gisting — er áætlaður heildarfjöldi gistinátta í ágúst rúmlega 1.606.000.
Er þar um að ræða 11,4 prósenta aukningu miðað við sama tíma árið 2024 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 1.442.000.
Fram kemur að meginþorri gistinátta hafi verið á hótelum og gistiheimilum eða tæplega 893 þúsund, 667 þúsund á hótelum og 226 þúsund á gistiheimilum.
Rúmlega 713 þúsund gistinætur hafi verið á öðrum tegundum skráðra gististaða.
„Á fyrstu átta mánuðum ársins voru uppsafnaðar gistinætur alls 7.345.000 sem var 8,8% meira en á sama tíma árið 2024,“ segir í samantekt Hagstofunnar.
Fram kemur að gistinóttum á hótelum hafi fjölgaði í öllum landshlutum og hlutfallslega mest á Suðurlandi, um rúman fimmtung.
„Nokkuð jafnari aukning var í öðrum landshlutum þar sem gistinóttum fjölgaði um 7,3% á Austurlandi, 6,3% á Suðurnesjum og 6,2% á höfuðborgarsvæðinu. Þá var 5,1% aukning á Norðurlandi og 3,6% á Vesturlandi og Vestfjörðum.“
Þá hafi gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um tæplega 18 þúsund milli ára en samanlagt um tæplega 41 þúsund í öðrum landshlutum, þar af um ríflega 31 þúsund á Suðurlandi.
Eins má lesa úr tölunum nokkra fjölgun í hópi erlendra ferðamanna, sem standa undir 92 prósentum af gistinóttum hótela. Þær voru rúmlega 616 þúsund talsins, sem er auking um 12,1 prósent frá fyrra ári.
„Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 51.000 sem var 13,6% minna en í ágúst árið 2024.“
Meginþorri erlendra ferðamanna er sagður af bandarísku bergi brotinn en gistinóttum þeirra hafi þó fækkað um 0,8 prósent í ágúst.
„Töluverð aukning var á gistinóttum ferðamanna frá Þýskalandi (14,7%), Ítalíu (20,2%) og Kína (56,3%). Á fyrstu átta mánuðum ársins jukust gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum um 7,9%. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði hins vegar um 4,5% á sama tíma.“
Nánari greiningu á framboði gistikosta og herbergjanýtingu má finna í samantekt Hagstofunnar.