Hefja samstarf um rannsóknir á markaði notaðra vara

Með samstarfi RSV og Smartgo mun í fyrsta sinn unnið markvisst að því að safna saman og greina gögn um viðskipti með notaðar vörur hér á landi.

Efnisveitan í Skeifunn 7 í Reykjavík.
Efnisveitan í Skeifunni er dæmi um fyrirtæki sem sérhæfir sig í umboðssölu á notuðum vörum. Mynd/Google Earth

Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) og tæknifyrirtækið Smartgo hafa gert með sér samstarfssamning um rannsóknir á hringrásarverslunum og umboðsöluverslunum á Íslandi.

Fram kemur á vef RSV að Smartgo sé leiðandi í þróun hugbúnaðar sem styðji rekstur hringrásarverslana og umboðsöluverslana. Fyrirtækið komi til með að veita RSV nauðsynleg gögn til kortlagningar á umfangi markaðar með notaðar vörur hér á landi.

„Í fyrsta sinn verður unnið markvisst að því að safna saman og greina gögn um viðskipti með notaðar vörur á Íslandi. Slíkar upplýsingar skipta miklu máli til að auka skilning á vaxandi hringrásarhagkerfi, fylgjast með breytingum í neyslumynstri og meta umfang endurnotkunar í verslun,“ segir þar.

Færst hefur í vöxt að fyrirtæki leggi hringrásarhagkerfinu lið með einhverjum hætti, svo sem með því að taka við eða jafnvel kaupa notuðan búnað sem síðan fer ýmist í endurvinnslu eða endurnýtingu og sölu eftir yfirferð og lagfæringar. Þá eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í að bjóða til sölu notaðan búnað frá bæði fyrirtækjum og einstaklingum.

„Þetta samstarf gerir okkur kleift að varpa ljósi á markað sem hingað til hefur verið lítt kortlagður,“ segir Klara Símonardóttir, forstöðumaður RSV. „Við teljum að niðurstöðurnar muni skipta miklu máli fyrir bæði opinbera aðila og fyrirtæki sem starfa á þessu sviði.“

Samstarfið er er sagt liður í markmiðum RSV um að styðja stefnumótun stjórnvalda og atvinnulífs með áreiðanlegum gögnum. Þá standi hugur Smartgo til að nýta samstarfið til að undirstrika mikilvægi tæknilausna við söfnun og úrvinnslu gagna á sviði hringrásarhagkerfisins og til að þróa lausnir sem styrki rekstrarumhverfi verslana sem byggi á endurnotkun.