Steinþór Pálsson ráðinn forstjóri hjá Thor landeldi 

Thor landeldi segir langtímamarkmið fyrirtækisins að framleiða allt að 20 þúsund tonn af laxi árlega.

Steinþór Pálsson
Steinþór Pálsson, forstjóri hjá Thor landeldi. Mynd/Thor landeldi

Thor landeldi hefur ráðið Steinþór Pálsson í stöðu forstjóra og kemur hann til með að stjórna áframhaldandi uppbygginu laxeldisstöðvar fyrirtækisins í Þorlákshöfn.

Steinþór er reyndur stjórnandi með viðamikla reynslu í íslensku og alþjóðlegu viðskiptalífi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Thor landeldi. Síðustu ár hefur hann starfað sem sjálfstæður ráðgjafi en var áður meðeigandi hjá KPMG og bankastjóri Landsbankans.  

„Það eru gríðarleg tækifæri í landeldi á laxi og sérstaklega hér á Íslandi þar sem aðstæður eru einstakar,“ segir Steinþór Pálsson. „Það er ákveðinn vendipunktur fram undan í starfsemi Thor landeldis. Að baki er vönduð undirbúningsvinna sem gerir fyrirtækinu kleift að sækja fram af miklum krafti næstu misseri. Mér finnst spennandi að taka þátt í þeirri uppbyggingu ásamt því góða teymi sem hefur komið félaginu á þennan stað.“ 

Ný seiðastöð opnuð 

Thor landeldi tók í notkun nýja seiðastöð í maí síðastliðnum. Þá voru fyrstu hrognin voru sett í hrognaskápa og seiði nú sögð vel á legg komin. Framkvæmdir við eldisstöðina hófust í júlí í fyrra og á hún að geta framleitt allt að fjórar milljónir seiða á ári. 

„Uppbygging Thor landeldis hefur staðist væntingar og áætlanir undir stjórn núverandi stjórnendateymis. Búið er að fjármagna fyrsta áfanga áframeldisstöðvar sem mun hafa árlega framleiðslugetu upp á 4.750 tonn,“ segir Jónas Engilbertsson stjórnarformaður Thor.

Hann segir Steinþór Pálsson vera öfluga viðbót við teymið, enda búi hann að viðamikilli reynslu af uppbyggingu fyrirtækja hér heima og erlendis.

„Með ráðningu Steinþórs styrkjum við teymið enn frekar og erum sannfærð um að framhaldið verði farsælt.“ 

Áframeldi hefst á næsta ári 

Í tilkynning fyrirtækisins segir að ráð sé fyrir því gert að fyrstu seiðin fari í áframeldi sumarið 2026. Langtímamarkmið hjá Thor sé að framleiða allt að 20 þúsund tonn af laxi árlega.

„Thor tryggði sér 4 milljarða króna fjármögnun frá núverandi hluthöfum í apríl með IS Haf fjárfestingar sem kjölfestufjárfesti og er því vel fjármagnað til áframhaldandi vaxtar.“  

Ásamt Steinþóri Pálssyni mynda Jónatan Þórðarson framkvæmdastjóri fiskeldis og Þórður Þórðarson lögfræðingur framkvæmdastjórn Thors landeldis.

Fram kemur að Halldór Ragnar Gíslason, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra, hafi sagt starfi sínu lausu en verði fyrst um sinn nýjum forstjóra til ráðgjafar.

„Halldóri eru þökkuð vel unnin störf við uppbyggingu og stofnun félagsins og óskar stjórn honum velfarnaðar í komandi verkefnum.“ 

Steinþór er með Cand. Oecon. gráðu frá Háskóla Íslands og MBA frá Edinborgarháskóla, að því er segir í tilkynningu Thors landeldis. Ásamt því að hafa verið ráðgjafi og meðeigandi KPMG og bankastjóri Landsbankans var hann framkvæmdastjóri hjá Actavis, bæði á Íslandi og erlendis.