Hækkun húsaleigu kom greinendum á óvart

Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,9 prósent á milli mánaða og hafði 0,18 prósenta áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs. Hækkunin er meiri en mánuðina á undan.

Hús í Reykjavík.
Mynd/Tom Podmore á Unsplash

Aukning verðbólgu um 0,11 prósent á milli mánaða í síðustu mælingu Hagstofu Íslands var í takti við væntingar greiningaraðila. Greiningardeild Landsbankans hafði spáð 0,07 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs og greiningardeild Íslandsbanka 0,15 prósenta hækkun.

Ársverðbólga jókst úr 3,8 prósentum í 4,1 prósent í verðbólgumælingunni.

„Helsta ástæðan aukningarinnar er að einskiptisliðurinn vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða síðasta haust er að detta út úr mælingunni. Þá jókst verðbólga miðað við VNV án húsnæðis einnig á milli mánaða, úr 2,8% í 3,2%,“ segir í umfjöllun greiningar Íslandsbanka.

Þá segir í umfjöllun greiningardeildar Landsbankans að flestir liðir í septemberverðbólgumælingunni hafi breyst eins og gert hafi verið ráð fyrir í spá.

„Helsti munurinn á spánni og mælingunni var að föt og skór hækkuðu minna en við spáðum sem þýðir að verð á fötum og skóm er enn lægra en það var fyrir sumarútsölur,“ segir í Hagsjá bankans.

Hækkun á reiknaðri húsaleigu kom hins vegar greiningardeildum beggja banka á óvart, en hún hækkaði um 0,9 prósent á milli mánaða og hafði 0,18 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs. Hækkunin er meiri en mánuðina á undan.

Greining Íslandsbanka bendir á að Hagstofan hafi breytt aðferðafræði við útreikning reiknuðu húsaleigunnar í fyrrasumar.

„Í fyrstu var það hagstætt fyrir verðbólguna þar sem hún hjaðnaði hraðar en ella. Leiguverð hefur hins vegar hækkað meira en íbúðaverð síðustu mánuði og samkvæmt okkar útreikningum virðist leiguverð nú hafa náð íbúðaverðinu og gott betur.“

Í Hagsjá Landsbankans er þó áfram gert ráð fyrir 0,5 prósenta hækkun á þessum undirlið verðbólguvísitölunnar næstu mánuði, meðal annars vegna þess að vísitölutenging leigusamninga næstu mánuði ætti að hafa lítil áhrif til hækkunar.

Greining Íslandsbanka er heldur svartsýnni í spá sinni á þróun verðbólgunnar næstu mánuði en greiningardeild Landsbankans.

Í bráðabirgðaspá Íslandsbanka er gert ráð fyrir að í næstu mælingu í október verði ársverðbólga 4,2 prósent og standi svo í stað í 4,3 prósentum í mælingum í nóvember og desember.

Landsbankinn spáir 4,2 prósenta ársverðbólgu í október og 4,0 prósentum í nóvember og desember.