Sprotafyrirtækið Aldin Dynamics valið Vaxtarsproti ársins

Fjármála- og efnahagsráðherra afhenti Vaxtarsprotann 2025 við hátíðlega athöfn í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal.

Vaxtarsprotinn afhentur.
Frá afhendingu Vaxtarsprotans í Grasagarðinum í Laugardal. Frá vinstri: Svandís Unnur Sigurðardóttir frá Rannís, Sigurður Óli Sigurðsson frá Rannís, Birgir Jósafatsson frá Thor Ice Chilling Solutions, Sigurður Hannesson frá SI, Ester Ósk Pálsdóttir frá Thor Ice Chilling Solutions, Árni Sigurjónsson frá SI, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Gunnar Steinn Valgarðsson frá Aldin Dynamics, Páll Arinbjarnar frá Aldin Dynamics, Erla Tinna Stefánsdóttir frá SI, Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir frá HR og Ragnhildur Helgadóttir frá HR.   Mynd/BIG

Sprotafyrirtækið Aldin Dynamics hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Fram kemur í tilkynningu að velta fyrirtækisins hafi aukist um 514 prósent milli ára, farið úr 151 milljón króna í 929 milljónir króna.

Daði Már Krisófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, afhenti Vaxtarsprotann 2025 í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal fyrr í dag, en þetta var í 19. sinn sem Vaxtarsproti ársins er afhentur.    

Fram kemur að Aldin Dynamics vinni að þróun tölvuleikja og hugbúnaðartækni sem geri notendum kleift að eiga raunsæ samskipti við gervigreindar-karaktera í sýndarheimum.

„Félagið byggir á margra ára reynslu í sýndarveruleika og markar með þessu nýtt skref í stafrænni upplifun framtíðarinnar.“

Fyrirtækið er sagt hafa tvö einkaleyfi sem tengist greiningu á hegðun notenda, auk fjölda skráðra vörumerkja í Evrópu og Bandaríkjunum, þar á meðal Waltz of the Wizard sem selst hafi í yfir milljón eintökum erlendis. Vörur Aldin Dynamics eru hannaðar fyrir alþjóðlega markaði og nánast allar tekjur félagsins koma utan frá. 

Gunnar Steinn Valgarðsson, annar stofnandi Aldin Dynamics, segir viðurkenninguna mikinn heiður og hvatningu til áframhaldandi starfa.

„Við viljum þakka sérstaklega uppbyggjandi sprotaumhverfi á Íslandi sem hefur veitt okkur byr undir báða vængi í gegnum tíðina. Við vonum innilega að sem flestir frumkvöðlar nýti sér þetta einstaka nýsköpunarumhverfi, taki skrefið fram á við og láti hugmyndir sínar verða að veruleika. Við hjá Aldin stefnum á að halda áfram okkar vegferð að þróa upplifanir sem sameina nýjustu tækni og listform á nýjan og aðgengilegan hátt,“  segir hann.

Þá kemur fram að Thor Ice Chilling Solutions hafi einnig hlotið viðurkenningu fyrir góðan vöxt. Velta fyrirtækisins hafi aukist um 531 prósent á milli ára, farið úr 39 milljónum króna í tæplega 247 milljónir króna.

„Thor Ice Chilling Solutions þróar og framleiðir vörur fyrir kælingu á ferskvöru, sérstaklega í kjúklingavinnslum. Markmið fyrirtækisins er að hjálpa matvælaframleiðendum að spara orku, fækka bakteríum og auka gæði afurða til neytenda.“

Markaðir Thor Ice Chilling Solutions eru sagðir nær eingöngu erlendis. Fyrirtækið hafi selt búnað til stærstu matvælaframleiðenda í Evrópu og sé með viðskiptavini meðal annars í Frakklandi, Hollandi, Póllandi, Kanada og Saudi Arabíu.  

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins (SI), Samtaka sprotafyrirtækja (SSP), Háskólans í Reykjavík (HR) og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís). Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

 Í dómnefnd voru Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir fyrir Háskólann í Reykjavík, Svandís Unnur Sigurðardóttir fyrir Rannís og Erla Tinna Stefánsdóttir fyrir Samtök iðnaðarins.  

Fyrirtæki sem hafa hlotið Vaxtarsprotann Fyrirtæki sem hafa fengið viðurkenningu fyrir góðan vöxt 
2007 Marorka  2007 Gagarín, Stiki, Stjörnu-Oddi 
2008 Mentor  2008 Betware, Valka, Kine 
2009 Mentor  2009 Naust Marine, Gogogic, Saga Medica 
2010 Nox Medical  2010 Valka, Hafmynd, Menn og Mýs 
2011 Handpoint  2011 Marorka, Trackwell, Gogogic 
2012 Valka  2012 Kvikna, ORF Líftækni, Thorice 
2013 Meniga  2013 Controlant, Nox Medical, Lceconsult 
2014 DataMarket  2014 Valka, Nox Medical, Skema 
2015 Kvikna 2015 Kvikna, Valka 
2016 Eimverk 2016 Lauf Forks, Orf Líftækni, Valka 
2017 Kerecis 2017 TeqHire, Valka, Kvikna 
2018 Kaptio 2018 Kerecis, Gangverk, Orf-Líftækni 
2019 CRI  2019 Taktikal, Kerecis 
2020 Kerecis 2020 CRI, Pure North Recycling 
2021 1939 Games 2021 Coripharma, Algalíf 
2022 Controlant 2022 Sidekick Health, Coripharma 
2023 Hopp 2023 Dohop, Lauf Forks 
2024 Abler2024 Ankeri
2025 Aldin Dynamics2025 Thor Ice Chilling Solutions