Af 385 þúsund bifreiðum sem skráðar eru hér á landi eru 51.470 skráðir sem rafmagnsbílar eða tvinnbílar með tengigetu, eða tæp 13,4 prósent heildarfjöldans. Þetta má lesa úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um bifreiðar skráðar hér á landi.
Fram kemur að af heildarfjölda skráðra bifreiða séu 268 þúsund í umráðum einstaklinga eða heimila, eða 69,5 prósent af heildarfjöldanum. Rafmagns- og tengitvinnbílar í þeim hópi veru 36.430 talsins, eða um 13,6 prósent.
Fram kemur í umfjöllun Hagstofunnar að hlutfall rafmagns- og tengitvinnbíla í eigu einstaklinga og heimila sé 70,7 prósent af heildarfjölda þeirra bíla, eða 36.430.
„Bifreiðar með þessa orkugjafa voru nánast óþekktar fyrir árið 2016 en fjöldi þeirra hefur aukist um 20-40 prósent á ári frá árinu 2019.“