Utanlandsferðir aldrei verið fleiri og bílasala glæðist

Þrátt fyrir síaukna neyslu virðast landsmenn ekki hafa gengið verulega á sparnað sinn að því er fram kemur í nýrri Hagsjá greiningardeildar Landsbankans.

Sólarströnd Benidorm á Spáni.
Á sólarströnd. Mynd/Martijn Vonk á Unsplash

Greiðslukortavelta heimila heldur áfram að aukast samhliða aukinni einkaneyslu, að því er fram kemur í nýrri Hagsjá greiningardeildar Landsbankans. Sama er sagt gilda um utanlandsferðagleði landsmanna og þá hafi bílakaup aukist líka.

Ólíklegt er talið að Seðlabankinn ráðist í að lækka raunvaxtastig í landinu á meðan sama neyslugleði ríkir.

Í Hagsjá bankans kemur fram að það sem af er ári hafi Íslendingar farið í rúmlega fimmtungi fleiri utanlandsferðir en á sama tímabili í fyrra.

„Auk þess að fara meira til útlanda virðast landsmenn kaupa þó nokkuð fleiri bíla en í fyrra. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs voru nýskráðir bílar um 28 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra.“

Fram kemur að kortavelta landsmanna hafi að raunvirði aukist á milli ára í hverjum mánuði allt frá því í október 2023. Kortaveltan hafi verið þremur prósentum meiri núna í ágúst en í ágúst í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis.

„Aukningin er langmest áberandi erlendis þar sem hún jókst um 16,4 prósent í ágúst á föstu gengi, svo dæmi sé tekið.“

Kortavelta innanlands er hins vegar sögð hafa dregist lítillega saman, um 0,6 prósent að raunvirði á milli ára. En í heild hafi kortaveltan á fyrstu átta mánuðum þessa árs aukist um tæplega fimm prósent frá sama tímabili í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis.

„Aukin kortavelta erlendis rímar við stöðuga fjölgun utanlandsferða. Það sem af er ári hafa utanlandsferðir Íslendinga verið rúmlega 20 prósent fleiri en á sama tímabili í fyrra,“ segir í Hagsjánni.

Og að í nýliðnum ágústmánuði hafi ferðir Íslendinga verið um 13 prósentum fleiri en í ágúst í fyrra.

„Í þessu samhengi ber þó að hafa í huga að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem notuð eru á ferðlögum erlendis en einnig kortum sem notuð eru í erlendri netverslun.“

Í umfjöllun greiningardeildar Landsbankans er jafnframt bent á að auk þess að ferðast meira kaupi landsmenn líka fleiri bíla en í fyrra.

„Reyndar var bílasala tiltölulega dræm í fyrra: Nýskráning bíla til einkanota var 50 prósentum minni á fyrstu átta mánuðum síðasta árs en á sama tíma árið þar á undan.“

Að þessum varnagla slegnum er á það bent í Hagsjá bankans að nýskráning bíla hafi aftur sótt í sig veðrið og það sem af er ári hafi rúmlega 28 prósentum fleiri fólksbílar verið nýskráðir á landinu en á sama tíma í fyrra, samkvæmt gögnum Bílgreinasambandsins.

Nýskráningum á fólksbílum til einkanota hafi fjölgað um tæplega 50 prósent á milli ára það sem af er ári og nýskráningu bílaleigubíla um rúmlega 17 prósent.

„Bílakaup eru stór hluti af neyslu heimila landsins og því hefur innflutningur á fólksbílum fylgt þróun einkaneyslu í grófum dráttum. Þó má greina mun meiri sveiflur í bílainnflutningi en einkaneyslu.“

Þrátt fyrir síaukna neyslu virðast landsmenn ekki hafa gengið verulega á sparnaðinn, að mati greiningardeildarinnar.

„Innlán halda sífellt áfram að aukast að raunvirði og yfirdráttur virðist ekki hafa færst í aukana.“

Þessa sterku stöðu heimila er sagt ekki síst mega rekja til aukins kaupmáttar, en laun hafi haldið áfram að hækka þó nokkuð á sama tíma og verðbólga hafi hjaðnað.

„Líklega þarf neyslukrafturinn eitthvað að gefa eftir áður en Seðlabankinn sér sér fært að lækka raunvaxtastigið að ráði.“

Lesa má alla Hagsjá greiningardeildar á vef bankans.