Markaður nýrra íbúða á valdi kaupenda en eldri á valdi seljenda

Talað er um seljendamarkað ef tekur innan við fjóra mánuði að selja íbúð, en ef það tekur meira en sex mánuði þá er talað um kaupendamarkað.

Reykjavík, Hlíðahverfi, Öskjuhlíð og Vatnsmýri.
Horft yfir Hlíðar, Öskjuhlíð og Vatnsmýri í Reykjavík. Mynd/ÓKÁ

Áfram virðist rólegt yfir íbúðamarkaði að mati greiningardeildar greiningardeildar Landsbankans. Þó er bent á misjafna stöðu kaupenda og seljenda á höfuðborgarsvæðinu eftir því hvort horft er til markaðar með nýjar eða eldri íbúðir.

Í reglubundinni umfjöllun í byrjun viku er bent á að raunverð íbúða hafi lækkað á milli ára í ágúst, í fyrsta skipti frá því í byrjun árs 2024, nafnverð íbúða hafi aðeins hækkað um 2,2 prósent á einu ári og að sífellt lengri tíma taki að selja íbúðir.

„Ein birtingarmynd lækkandi hitastigs á íbúðamarkaði er sífellt lengri sölutími íbúða,“ segir í umfjöllun greiningardeildarinnar.

Miðað sé við í mælingum á þeim tíma sem tekur að selja húsnæði að taki skemmri tíma en fjóra mánuði að selja þá sé markaðurinn á valdi seljenda. En ef það taki meira en sex mánuði þá þýði það að markaðurinn sé á valdi kaupenda.

Vitnað er í tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að „birgðatími“ nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafi í ágúst verið tæplega 17 mánuðir. Það sé mun lengra en birgðatími eldri íbúða, sem hafi numið tæplega þremur mánuðum.

„Þannig má segja að markaður með nýjar íbúðir sé á valdi kaupenda en markaður með eldri íbúðir sé á valdi seljenda.“

Greiningardeild Landsbankans bendir líka á að vísitala leiguverðs hafi hækkað í ágúst og að hækkandi leiguverð hafi með tímanum áhrif á verðbólgumælingar.

Minnt er á að Hagstofan birti verðbólgutölur fyrir september á fimmtudag í þessari viku. Þá gerir greiningardeild Landsbankans ráð fyrir að verðbólga aukist úr 3,8 prósentum í 4,1 prósent.