Landsvirkjun hefur kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 18. ágúst til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Samkeppniseftirlitið sagði Landsvirkjun hafa selt Landsneti rafmagn á of lágu verði á árunum 2017 til 2021 og sektaði fyrirtækið um 1,4 milljarða króna.
Á vef Landsvirkjunar kemur fram að lögmaður fyrirtækisins í málinu, Hörður Felix Harðarson, hafi jafnframt sent Samkeppniseftirlitinu bréf þar sem svarað sé fyrirspurn eftirlitsins um ýmislegt sem fram hafi komið í svargrein forstjóra Landsvirkjunar við ákvörðuninni.
„Í ákvörðuninni komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun hefði selt Landsneti rafmagn á of lágu verði á árunum 2017 til 2021,“ segir Landsvirkjun.
Í lok þeirrar sömu viku hafi Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar sent frá sér grein þar sem hann hafi farið ítarlega yfir afstöðu Landsvirkjunar í málinu. Samkeppniseftirlitið hafi svo svarað með fyrirspurn og pistli á eigin vef þar sem réttu máli hafi verið hallað.
„Í bréfi Harðar Felix kemur meðal annars fram að Landsvirkjun hafi talið allar forsendur til að ljúka málinu með sátt. Það sé röng og tilefnislaus aðdróttun að Samkeppniseftirlitið kunni að hafa verið blekkt til að fallast á sáttaviðræður.“
Þá mótmælir lögmaður Landsvirkjunar einnig ummælum Samkeppniseftirlitsins í þá veru að forstjóri Landsvirkjunar hafi ekki farið rétt með í umfjöllun sinni um milliliði á raforkumarkaði.
„Alvarlegastar eru þó ályktanir Samkeppniseftirlitsins um að starfsfólk Landsvirkjunar hafi af ásetningi brotið gegn banni við misnotkun á markaðsráðandi stöðu.“
Þá segir Landsvirkjun Hörð Felix jafnframt hafa bent á þá „óumdeildu staðreynd“ að markaður fyrir flutningstöp hafi aldrei verið skilgreindur sem sjálfstæður markaður hérlendis.
„Samkeppniseftirlitið vísi til innanhússgagna Landsvirkjunar, að því er virðist til stuðnings því að Landsvirkjun hafi átt að vera ljóst að slíkur markaður væri til og að Landsvirkjun væri markaðsráðandi á þeim markaði. Ekkert í gögnunum gefur tilefni til slíkra ályktana, hvað þá til að álykta um að ásetningur Landsvirkjunar hafi staðið til ólöglegrar háttsemi,“ segir í umfjöllun Landsvirkjunar.
Bent er á að samkvæmt samkeppnislögum eigi úrskurður áfrýjunarnefndarinnar að liggja yfir innan sex vikna frá kæru.