Krónan opnar nýja verslun á Höfn í Hornafirði

Eftir opnun nýrrar verslunar á Höfn í Hornafirði kemur Krónan til með að reka tuttugu og sjö verslanir um allt land. Af þeim tíu utan höfuðborgarsvæðisins.

Grunnur nýrrar verslunar Krónunnar á Höfn í Hornafirði.
Framkvæmdir eru hafnar þar sem ný verslun Krónunnar verður á Höfn í Hornafirði. Mynd/Krónan

Til stendur að Krónan opni í nýju verslunarhúsnæði að Hafnarbraut 60 á Höfn í Hornafirði á næsta ári. Í tilkynningu Krónunnar kemur fram að vonir standi til að hægt verði að opna verslunina, sem verður um 1.500 fermetrar að stærð, fyrir næsta sumar, annars í síðasta lagi um haustið.

Krónan segir markmiðið með nýrri verslun á Höfn að veita íbúum og gestum á svæðinu enn betri þjónustu og aðgengi að fjölbreyttu vöruúrvali á sem allra hagstæðasta verði.

„Þegar fram líða stundir verður einnig boðið upp á heimsendingaþjónustu innanbæjar og til nærliggjandi sveita,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að fyrirtækið leggi sig fram um að tryggja að landsmenn njóti sama úrvals á sama verði, óháð búsetu, hvort sem það sé í gegnum Snjallverslun Krónunnar eða í hefðbundinni verslun.

Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar og Sigurjón Andrésson bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar og Sigurjón Andrésson bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar.

„Með því að opna á Höfn gerum við íbúum kleift að fá þetta aðgengi og styrkjum um leið þjónustu okkar á landsbyggðinni. Við erum líka stolt af því að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu á Höfn og hlökkum til að leggja samfélaginu lið, meðal annars með því að skapa störf, auka fjölbreytni í vöruúrvali og bæta þjónustuna innan sveitarfélagsins,“ segir hún.

Jafnframt segir Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Hornafjarðar, það vera mikið gleðiefni að fá Krónuna inn í samfélagið.

„Ný verslun eykur fjölbreytni og tryggir samkeppni á matvörumarkaði, sem skiptir miklu fyrir íbúa og gesti. Verslunin rís við íbúðabyggðina þar sem ekið er inn í bæinn og verður norðan við nýtt og glæsilegt 200 íbúða hverfi sem tekur á sig mynd á næstu árum. Þetta er til marks um mikla uppbyggingu um allan Hornafjörð, bæði í dreifbýlinu og í þéttbýlinu hér á Höfn – og þann mikla kraft sem samfélagið býr yfir,“ segir hann.

Fram kemur að í nýju versluninni verði lögð áhersla á ferskleika og góða upplifun viðskiptavina. Í boði verði að skanna og skunda í Krónuappinu og þá verði, auk hefðbundinnar þjónustu, boðið upp á lausnir fyrir fyrirtæki.

„Krónan leggur jafnframt mikið upp úr sjálfbærni og umhverfisvænum lausnum. Í nýju versluninni verður meðal annars orkusparandi LED lýsing, lokaðir kælar og frystar knúnir umhverfisvænu kerfi, og grænar innkaupakerrur úr endurunnu plasti sem safnað hefur verið úr sjónum.“

Tölvugerð mynd af nýju verslunarhúsnæði Krónunnar á Höfn í Hornafirði.
Tölvugerð mynd af nýju verslunarhúsnæði Krónunnar á Höfn í Hornafirði.