RST Net sér fyrirhuguðu Vaðölduveri fyrir rafbúnaði

Gert er ráð fyrir gangsetningu fyrsta vindorkuvers landsins næsta haust og að það verði komið í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.

Fyrirhugað vindorkuver Vaðöldu.
Tölvugerð mynd af fyrirhuguðu vindorkuveri fengin af vef Landsvirkjunar.

Landsvirkjun hefur samið við fyrirtækið RST Net um hönnun, innkaup, framleiðslu og uppsetningu á rafbúnaði í safnstöð á framkvæmdasvæði fyrirhugaðs vindorkuvers við Vaðöldu. Á vef Landsvirkjunar kemur fram að samningurinn nemi rúmum 450 milljónum króna og að tilboð RST Net hafi verið metið hagstæðast af fjórum sem bárust.

Vaðölduver er fyrsta vindorkuver landsins og verða þar settar upp 28 vindmyllur á 17 ferkílómetra svæði. Landsvirkjun segir að helmingur þeirra verði gangsettur haustið 2026, en reiknað er með að vindorkuverið verði komið í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.

Fram kemur að RST Net hefji nú þegar hönnun, innkaup og framleiðslu nú þegar. Verkinu fylgi uppsetning á rafbúnaði í safnstöð sem tengist vindmyllum versins.

„Helstu verkþættir samningsins fela í sér útvegun og uppsetningu á 33 kV og 11 kV dreifingu ásamt stöðvarnotkunarspennum. Þá verður smíðuð og sett upp 400 V aðaldreifing og tvær jafnstraumsdreifingar,“ segir í frétt Landsvirkjunar.

Þá sjái RST Net einnig um útvegun, forritun og uppsetningu á stjórn- og varnarbúnaði, auk eftirlits, tenginga og frágangs á 33 kV og 11 kV strengjum. Loks feli samningurinn í sér útvegun og uppsetningu á 220 kV gegnumtökum ásamt ýmsum auka- og viðbótarverkum.

Haft er eftir Sigurgeiri B. Geirssyni, yfirverkefnisstjóra Vaðölduvers, að samningurinn sé stór áfangi í uppbyggingu vindorkuversins.

„Við erum afar ánægð með að semja við íslenskt fyrirtæki sem hefur mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Með þessu tryggjum við öflugan rafbúnað sem mun nýtast til að tengja vindorkuna við raforkukerfið og styðja þannig orkuskipti framtíðarinnar,“ segir Sigurgeir.

Sigurgeir B. Geirsson, Ásbjörg Kristinsdóttir, Steinn Ágúst Steinsson, Sigmundur Jónsson, Bergsteinn Daníelsson, Sigrún Elva Reynisdóttir
Frá undirritun samnings Landsvirkjunar og RST Net. F.v.: Sigurgeir B. Geirsson, yfirverkefnastjóri Vaðölduvers, Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda, Steinn Ágúst Steinsson, sérfræðingur í þróun vindorku, Sigmundur Jónsson, framkvæmdastjóri RST Net, Bergsteinn Daníelsson, verkefnisstjóri hjá RST Net og Sigrún Elva Reynisdóttir, sérfræðingur hjá Landsvirkjun. Mynd/Landsvirkjun

Upplýsingar um framkvæmdir og framgang uppbyggingar vindorkuvers Landsvirkjunar er að finna á framkvæmdavef Vaðölduvers.