Helga Kristín Gunnlaugsdóttir og Kristján Helgi Olsen Ævarsson hafa verið ráðin nýir vörumerkjastjórar hjá Ölgerðinni, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins.
Helga Kristín er sögð koma til Ölgerðarinnar frá auglýsingaskrifstofunni Kontor, þar sem hún hafi starfað sem viðskiptastjóri og sinnt markaðsráðgjöf fyrir mörg þekkt íslensk vörumerki.
Hún er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og kemur til með að stýra vörumerkjum Carlsberg Group og Guinness.
„Það er spennandi áskorun að fá að vinna með Carlsberg Group, einu stærsta brugghúsi heims, að frekari uppbyggingu merkja þeirra. Vörumerkin hafa jú um árabil verið fyrirferðamikil í íslenskri viðburðamenningu, t.d. sem helsti kostandi Þjóðhátíðar í Eyjum og margra stærstu samkoma landsins. Þá styttist í jólabjóravertíðina þar sem Tuborg hefur mikla og sterka nærveru og er langsöluhæsti jólabjórinn. Ég hlakka líka til að fylgja eftir gríðarlegum uppgangi Guinness hér á landi, en það er óhætt að segja að hálfgert „Guinness æði“ hafi ríkt,“ segir Helga Kristín í tilkynningunni.
Þá kemur fram að Kristján Helgi komi til með að stýra verkefnum á borð við Borg Brugghús, Brennivín og Öglu Gosgerð, ásamt fleiru.
Hann starfaði áður hjá Fríhöfninni og Samkaupum þar sem hann er sagður hafa unnið að verkefnum tengdum innkaupum, birgðarstýringu og vöruflokkastjórnun auk þess að sjá um samningagerð og samskipti við birgja. Hann er með B.A. í lögfræði frá H.Í.
„Það er virkilega ánægjulegt að taka við þessu hlutverki, enda þekki ég, eins og aðrir landsmenn, þessi vörumerki vel og hef á þeim dálæti. Brennivín fagnar einmitt 90 ára afmæli á þessu ári og það hefur líklega aldrei verið sterkara en einmitt nú. Ég hef fylgst með Borg Brugghúsi leiða íslenska bjórmenningu til betri vegar undanfarin ár og hlakka til að fylgja þeirri vinnu vel eftir. Nú verður gaman,“ segir hann.
Bergsveinn Guðmundsson, markaðsstjóri áfengra drykkja hjá Ölgerðinni, segir fyrirtækið ánægt að fá Helgu Kristínu og Kristján Helga til liðs við Ölgerðarina.
„Grunnurinn að öflugu og faglegu markaðsstarfi er fólkið okkar og við bindum miklar vonir við að metnaður þeirra og kraftur styðji við vöxt og framþróun vörumerkjanna,“ segir hann.