Sigurður Ágúst Einarsson hefur verið ráðinn í nýja stöðu framkvæmdastjóra verkfræðisviðs samheitalyfjafyrirtækisins Coripharma.
Að því er fram kemur í tilkynningu felur nýja staðan í sér ábyrgð á að allur vélbúnaður, hugbúnaður, framleiðslukerfi, innviðir og fasteignir, þar á meðal viðhald og stöðugar umbætur, séu til staðar til að styðja við ört vaxandi lyfjaþróun og framleiðslu fyrirtækisins.
„Að auki mun verkfræðisvið veita forystu í öryggis-, heilsu- og umhverfismálum. Sigurður tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins.“
Sigurður er sagður koma með tuttugu ára reynslu af stjórnun tæknimála fyrir stór innlend iðnfyrirtæki s.s. Alcoa Fjarðarál, Icelandair og nú síðast JBT Marel.
„Hann er með B.Sc. próf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og mastersgráður í framleiðsluverkfræði og stjórnun frá Royal Institute of Technology í Stokkhólmi og í efnisfræði frá Norwegian University of Science and Technology í Þrándheimi.“
Haft er eftir Sigurði Ágústi að hann sé mjög ánægður að fá tækifæri til að leiða nýstofnað verkfræðisvið Coripharma og hlakki til þess að byggja ofan á það góða starf sem unnið hefur verið.
„Félagið er í örum vexti og spennandi tímar fram undan í enn frekari uppbyggingu. Það er til mikils að vinna í að tryggja skilvirkt og hnökralaust tæknikerfi sem og að móta áfram sterka umbótamenningu. Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við komandi verkefni með öflugu starfsliði Coripharma,” segir hann.
Þá segir Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, að umsvif fyrirtækisins hafi aukist jafnt og þétt og að á þessu ári sé búist við tvöföldun á útflutningi taflna.
„Það er því lykilatriði að vél- og hugbúnaður styðji á skilvirkan hátt við aukin umsvif í bæði lyfjaþróun og framleiðslu. Ég fagna því innilega að fá Sigurð til liðs við okkar öfluga teymi og er sannfærð um að nýtt verkfræðisvið, undir hans styrkri forystu, muni stuðla að áframhaldandi vexti og framgangi félagsins,“ segir hún.