Samdráttur hafinn í byggingariðnaði

Skortur á byggingarhæfum lóðum á viðráðanlegu verði og óskilvirkni við veitingu skipulags- og byggingarleyfa eru meginástæður samdráttar í byggingariðnaði að mati SI.

Byggingarkrani.
Byggingarkrani. Mynd/ÓKÁ

Nýbirtar hagtölur frá Hagstofu Íslands og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) sýna, að mati Samtaka iðnaðarins (SI), að samdráttur sé hafinn í byggingariðnaði.

„Eftir fjögurra ára vaxtarskeið frá árinu 2021 hefur velta í greininni nú dregist saman, störfum fækkað, innflutningur byggingarefna minnkað og fjöldi íbúða í byggingu dregist saman svo eitthvað sé nefnt,“ segir í nýrri greiningu samtakanna.

SI segja ástæður samdráttarins eru nokkrar. Þannig hafi háir stýrivextir Seðlabankans gert alla fjármögnun íbúðauppbyggingar dýrari. Háir vextir íbúðakaupenda ásamt ströngum lántökuskilyrðum hafi einnig gert sölu erfiðari og við bætist hár byggingarkostnaður og seinagangur í skipulagsmálum sveitarfélaga.

„Vegur þar þungt hækkun opinberra gjalda, svo sem gatnagerðargjöld, lóðagjöld og -verð ásamt ýmsum innviðasköttum sveitarfélaga. Einnig hefur lækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts á vinnu iðnaðarmanna á verkstað dregið úr uppbyggingu íbúða.“

Við þetta segja samtökin að bætist flókin og íþyngjandi byggingarreglugerð. Stærsta hindrunin í vegi fyrir aukinni uppbyggingu hafi hins vegar verið skortur á byggingarhæfum lóðum á viðráðanlegu verði og langur og óskilvirkur ferill við skipulags- og byggingarleyfi hjá sveitarfélögum.

Í greiningu sinni benda samtökin á að byggingariðnaður er ein af undirstöðum íslensks efnahagslífs og hafi mikið vægi í verðmætasköpun og á vinnumarkaði, beint og óbeint.

„Fyrirtæki í greininni starfa um allt land þar sem þau skapa störf og sinna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu íbúða, atvinnuhúsnæðis og opinberra innviða, sem allt eru forsendur fyrir samkeppnishæfni atvinnulífsins, framleiðni og lífsgæðum landsmanna.“

Í greiningu SI segir að niðursveiflan í byggingariðnaðinum hafi bein áhrif á hagvöxt, sem aðeins hafi mælst 0,3% á fyrri helmingi ársins eftir samdrátt í fyrra.

„Efnahagsáhætta fylgir miklum sveiflum í greininni. Slíkar sveiflur skapa efnahagslegan vítahring þar sem samdráttur í dag býr til skort á íbúðum og lakari innviði á morgun, sem aftur leiðir af sér minni framleiðni, lakari samkeppnishæfni, verðbólgu og hærri vexti.“

Greininguna alla má sækja á vef SI.