Launamunur karla og kvenna mælist yfir tíu prósentum

Hagstofan segir launamun kynjanna að hluta skýrast af því að hærra hlutfall kvenna en karla starfar hjá hinu opinbera. Mestur er munurinn á launum kynjanna í fjármála- og vátryggingastarfsemi, 26,1 prósent.

Mynd/ Juan Marin á Unsplash

Óleiðréttur launamunur karla og kvenna var 10,4 próent árið 2024 og jókst á milli ára. Í nýrri samantekt Hagstofu Íslands kemur fram að árið 2023 hafi launamunurinn verið 9,3 prósent. Munar þar 1,1 prósentustigi á milli ára.

„Launamunur jókst eftir aldri og var munurinn 0,7 prósent á meðal 24 ára og yngri, 9,4 prósent í aldurshópnum 35-44 ára og 16,7 prósent meðal 55-64 ára,“ segir í samantekt Hagstofunnar.

Þá kemur fram að mikill munur hafi verið á launamuni eftir atvinnugreinum.

„Í fjármála- og vátryggingastarfsemi var munurinn 26,1 prósent en minnstur í atvinnugreininni rafmagns-, gas- og hitaveitur eða 1,6 prósent.“

Fram kemur að óleiðréttur munur á tímakaupi karla og kvenna eftir starfsstétt hafi verið á bilinu –5,2 prósent hjá skrifstofufólki og 24.8 prósent á meðal tækna og sérmenntaðs starfsfólks.

„Ein helsta skýring þess launamunar sem er til staðar á Íslandi er kynbundin skipting í störf og atvinnugreinar samanber nýlegar rannsóknir Hagstofu Íslands á launamun karla og kvenna sem komu út 2021 og 2024. Þar kemur meðal annars fram að um 43 prósent kvenna sem voru á vinnumarkaði árið 2019 störfuðu hjá hinu opinbera en einungis um 15 prósent karla.“

Fram kemur að árið 2024 hafi verið 15,2 prósenta launamunur á almennum vinnumarkaði, 7,7 prósent hjá starfsfólki ríkisins og 4,0 prósent á meðal starfsfólks sveitarfélaga.

Þá segir Hagstofan að fyrir allan vinnumarkaðinn sýni launadreifing eftir kyni að hlutfallslega fleiri konur séu með lægra tímakaup en karlar.

„Hátt hlutfall yfirvinnustunda hefur áhrif til hækkunar á tímakaupi þar sem yfirvinnustund er að jafnaði dýrari en dagvinnustund. Karlar vinna að jafnaði meiri yfirvinnu en konur sem skýrir muninn að hluta.“

Sleginn er sá varnagli að að óleiðréttur launamunur sé samanburður á meðaltali og þar sem laun séu almennt ekki „normaldreifð“ þá hafi hærri laun áhrif til hækkunar á meðaltali.

„Þar sem algengara er að karlar séu með laun í hæsta launastigi getur það því ýkt launamuninn.“

Frekari upplýsingar um launamun kynjanna er að finna í nýrri samantekt Hagstofunnar.