Icelandair semur um tvær nýjar Airbus A321LR þotur

Von er á nýju Airbus þotunum tveimur til landsins veturinn 2026/2027.

Airbus A321LR farþegaþota Icelandair.
Icelandair fékk sína fyrstu Airbus A321LR farþegaþotu í desember í fyrra. Hér sést hún nýlent í Keflavík. Mynd/ÓKÁ

Icelandair hefur gert nýja leigusamninga við flugvélaleigusalann CALC um tvær glænýjar Airbus A321LR farþegaþotur. Fram kemur í tilkynningu flugfélagsins að samningurinn marki upphaf nýs langtímasamstarfs milli Icelandair og CALC, sem byggi á sameiginlegri framtíðarsýn og langtímasamstarfi.

Vélarnar verða afhentar beint frá Airbus veturinn 2026/2027 og verða hluti af stækkandi flota Airbus A321LR véla Icelandair, sem leysa af hólmi Boeing 757 vélar félagsins.

„A321LR býður upp á einstaklega gott flugdrægi, betri eldsneytisnýtingu og minni losun samanborið við 757 vélarnar, og bætir upplifun farþega með Airspace hönnun Airbus,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, fagnar nýju samstarfi við CALC og segir flugfélagið hlakka til að vinna með CALC að áframhaldandi þróun flugflotans.

„Þessar tvær nýju Airbus A321LR vélar eru hluti af endurnýjun flugflotans okkar yfir í nýjar hagkvæmari flugvélar.  Jafnframt styður viðbótin við markmið okkar um að efla leiðakerfið og veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og upplifun,“ segir hann.