Ársfjórðungsleg vísitala heildarlauna hækkaði um 8,3 prósent á milli annars ársfjórðungs 2024 og sama ársfjórðungs 2025.
Í frétt Hagstofu Íslands um þróunina kemur fram að á sama tímabili hafi vísitala launakostnaðar hækkað um 12,6 prósent.
„Mikill munur á ársbreytingu vísitalnanna skýrist af því að páskar féllu á annan ársfjórðung ársins 2025 í stað fyrsta eins og árið 2024 og því færðust frídagar á milli ársfjórðunga,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar.
Þessi tilfærsla frídaga er sögð hafa áhrif á vísitölu launakostnaðar, sem byggi á unnum stundum. Hins vegar komi ekki til áhrifa á vísitölu heildarlauna, sem byggi á greiddum stundum.