Frá og með deginum í dag, 8. september, verða dagslok bankadaga í innlánakerfum Reiknistofu bankanna (RB) færð frá níu að kvöldi til miðnættis. Áhrifin eru meðal annars að millifærslur sem framkvæmdar eru eftir klukkan níu að kvöldi og fram að miðnætti verða bókaðar sama dag í kerfum bankanna.
Í frétt Landsbankans um breytinguna kemur fram að bankadagar verði áfram virkir dagar og að færslur sem berist á frídögum verði áfram bókaðar á næsta virka degi.
RB lét vita af breytingunni um miðjan maí síðastliðinn og sagði þá að markmið breytinganna væri að koma enn betur til móts við nútíma viðskiptahætti með því að hafa dagslok bankakerfa í samræmi við almanaksdaga og styðja þannig við sveigjanlegri opnunartíma og samfellda þjónustu.
„Breytingin mun nýtast almenningi, fyrirtækjum og stofnunum sem treysta á hraða og áreiðanlega afgreiðslu bankaviðskipta á kvöldin,“ sagði í færslu RB.
Þá voru viðskiptavinir og samstarfsaðilar hvattir til að kynna sér áhrif breytingarinnar á viðskipti sín og hafa samband við þjónustuver viðskiptabanka sinna ef frekari upplýsinga væri þörf.