Vöruskiptahalli jók halla á viðskiptajöfnuði

Fjárfestingarumsvif gagnavera á Íslandi leidd til sögulega hárrar mælingar á vöruskiptahalla.

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands. Mynd/Google Earth

Halli á viðskiptajöfnuði við útlönd var 82,3 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi 2025 eða 1,7 prósent af landsframleiðslu. Samskvæmt nýbirtum tölum Seðlabanka Íslands jókst hallinn um 25,9 milljarða króna milli ársfjórðunga og um 44,8 milljarða frá sama fjórðungi árið 2024.

Fram kemur í tilkynningu bankans að halli á viðskiptajöfnuði litist af fjárfestingarumsvifum gagnavera sem hafi leitt til þess að vöruskiptahallinn mælist sögulega mikill.

Tafla/Seðlabanki Íslands

Vöruskiptahalli mældist neikvæður um 135,2 milljarða króna, en bankinn segir 61,8 milljarða króna afgang hafa verið á þjónustujöfnuði. Afgangur á frumþáttatekjum hafi numið 3,9 milljörðum, en 12,8 milljarða króna halli hafi verið á rekstrarframlögum.

Vitnað er til nýbirtra upplýsinga á vef Seðlabankans sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta ársfjórðungi 2025 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Fram kemur að í lok ársfjórðungsins hafi hrein staða við útlönd verið jákvæð um 2.089 milljarða króna eða 43,9 prósent af vergri landsframleiðslu.

Sú staða hafi versnað um 91 milljarð króna eða um 1,9 prósent af vergri landsframleiðslu á fjórðungnum.

„Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.762 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.673 milljörðum króna. Á fjórðungnum versnaði staðan um 95 milljarða króna vegna fjármagnsviðskipta.“

Erlendar eignir eru sagðar hafa aukist um 97 milljarða og skuldir um 191 milljarð.

„Gengis- og verðbreytingar lækkuðu virði eigna á ársfjórðungnum um 105 milljarða króna og skulda um 116 milljarða króna og leiddu því til 11 milljarða króna betri hreinnar erlendrar stöðu.“

Þá segir Seðlabankinn gengi krónunnar hafa hækkað um tæp 2,8 prósent í fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hafi hækkað um 11,0 prósent milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði lækkað um 1,6 prósent.