Íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma setti sölumet í júlí

Síðar á þessu ári stefnir íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma á að setja þrjú nýlega þróuð lyf á markað.

Framleiðsla hjá Coripharma.
Mynd/Coripharma

Vörusala lyfjafyrirtækisins Coripharma í júlímánuði á eigin þróuðum vörum nam rétt tæpum hálfum milljarði íslenskra króna eða 3,78 milljónum evra. Fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins að salan hafi aldrei verið meiri í einum mánuði frá stofnun þess. Jafnframt hafi heildarvörusala Coripharma í júlí verið sú næst mesta frá upphafi.

„Tvö lyf, bæði þróuð af Coripharma og fóru á markað á síðasta ári, reyndust langstærst.  Annars vegar Bosutinib, sem er lyf við hvítblæði, og hins vegar Raltegravir, sem er lyf við HIV veirunni.  Samtals voru þessi tvö lyf með sölu yfir 2 milljónir evra,“ segir í tilkynningu.

Fram kemur að Coripharma hafi verið fyrsta samheitalyfjafyrirtækið til að setja Bosutinib á markað og sé enn eini framleiðandinn að því samheitalyfi í Evrópu. Lyfið sé nú selt á 16 mörkuðum í öllum helstu löndum Evrópu.

„Eftirspurn eftir lyfinu er margfalt yfir væntingum og er búið að móttaka pantanir fyrir 7 milljónir evra á þessu ári, sem gerir það að söluhæsta lyfi Coripharma.“

Þá er Coripharma sagt eitt af tveimur félögum sem vitað sé til að hafi náð að þróa Raltegravir fyrir Evrópumarkað, en fjöldi samheitalyfjafyrirtækja hafi gert til þess árangurslausar tilraunir.

„Lyfið fór á markað í Bretlandi, Spáni og Ítalíu á síðasta ári og bættist Þýskalandsmarkaður við á öðrum ársfjórðungi 2025. Reiknað er með að lyfið farið á 8 nýja markaði í Evrópu fyrir árslok.  Pantanir vegna Raltegravir eru að sama skapi vel yfir væntingum, en búið er að móttaka pantanir fyrir ríflega 5 milljónir evra á árinu.“

Fram kemur að á seinni hluta þessa árs komi Coripharma, í gegnum viðskiptavini sína, til með að setja þrjú nýlega þróuð lyf á markað og að fyrstu pantanir hafi þegar verið mótteknar.

Hjá Coripharma, sem er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja, starfa um 220 manns.