Enn meiri stækkun fram undan

Fjárfesting og stækkun gagnavera á Íslandi síðustu ár hefur skilað atNorth stórum viðskiptasamningum sem leggja grunn að stöðugum vexti næstu ár, segir forstjóri fyrirtækisins.

atNorth ICE02 gagnaver í Reykjanesbæ
Í gagnaveri atNorth í Reykjanesbæ. Mynd/atNorth

Nýir samningar gagnaversfyrirtækisins atNorth við stóra erlenda viðskiptavini og grænn raforkusamningur við Landsvirkjun byggja að sögn fyrirtækisins á umfangsmikilli fjárfestingu í stækkun gagnavera þess á Íslandi síðustu ár.

„atNorth lauk nýverið samningum við tvo stóra erlenda viðskiptavini um umtalsverða stækkun í gagnaverum fyrirtækisins á Íslandi. Annar þeirra varðar stækkun skýjaþjónustu Crusoe í gagnaveri atNorth í Reykjanesbæ, en það er með stærstu gagnaverum sinnar gerðar á Norðurlöndum,“ segir í tilkynningu atNorth

Áætluð fjárfesting tengd þessari stækkun er sögð nema um 32 milljörðum króna og fallar að mestu leyti til árið 2026.

Síðan er fimm ára raforkusamningur Landsvirkjunar og atNorth sem tilkynnt var um í gær um kaup gagnaversins á Akureyri á 12 MW forgangsorku frá og með síðari hluta næsta árs.

Haft er eftir Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni, forstjóra atNorth, að aukin fjárfesting í vexti og uppbyggingu starfsemi atNorth á Íslandi, sér í lagi í Reykjanesbæ og á Akureyri, byggi á traustum langtímasamningum við öfluga viðskiptavini og tryggi fyrirtækinu stöðugan vöxt næstu ár.

„Fjöldi starfsmanna á Íslandi hefur einnig aukist verulega og eru þeir nú um 100 talsins. Við sjáum fyrir okkur vatnaskil á næsta ári þegar sú mikla fjárfesting í innviðum og mannauði sem ráðist hefur verið í fer að skila sér í arðbærum rekstri,“ segir hann.

Í ársreikningi atNorth fyrir 2024 kemur fram að fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) hafi verið 192,4 milljónir dala, samanborið við 30,3 milljónir dala 2023, sem þýðir þreföldun á efnahagsreikningi félagsins.

„Upphæðin samsvarar tæplega 23,4 milljörðum króna samanborið við 3,7 milljarða króna árið áður. Áður hefur komið fram að áætluð heildarfjárfesting atNorth á Íslandi fyrir 2024-2025 verði um 41 milljarðar króna og má ætla að það verði nokkuð nærri lagi.“

Vöxtur atNorth á Íslandi síðustu ár er sagður hafa falið í sér fjárfestingu í innviðum, mannauði og ferlum, sem tímabundið hafi haft áhrif á afkomu félagsins. Tap á rekstrinum hafi aukist á milli ára og numið 11,5 milljónum dala árið 2024, samanborið við 6,3 milljónir dala árið áður. EBITDA hafi farið úr 8,3 milljónum dala 2023 í 2,3 milljónir dala á síðasta ári.

„Á yfirstandandi ári gerir atNorth ráð fyrir jákvæðri EBITDA afkomu og áframhaldandi rekstrarbata á næsta ári,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.

Alls rekur atNorth átta gagnaver á Norðurlöndum, en þar af eru þrjú á Íslandi, í Reykjanesbæ, Hafnarfirði og á Akureyri. Tvö til viðbótar eru svo í smíðum í Danmörku og Finnlandi. Starfsmenn atNorth eru rúmlega 200, þar af helmingurinn á Íslandi.