atNorth á Akureyri kaupir forgangsorku af Landsvirkjun

Breyttar áherslur gagnavera sem nú hafi í fyrirrúmi gervigreind og þjónustu við viðskiptavini sem þurfi mikla reiknigetu segir Landsvirkjun vera í takti við eigin stefnu um að styðja við stafræna vegferð samfélagsins.

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Eyjólfur Magnús Kristinsson forstjóri atNorth undirrita samkomlag um aukin kaup gagnaversins á raforku frá Landsvirkjun. Mynd/Landsvirkjun

Landsvirkjun og gagnaver atNorth á Akureyri hafa samið um kaup gagnaversins á allt að 12 MW forgangsorku frá og með síðari hluta næsta árs.

Í tilkynningu Landsvirkjunar segir að samningurinn sé til fimm ára og þar sem atNorth kaupi einnig upprunaábyrgðir flokkist samningurinn sem grænn raforkusamningur.

„Vegna takmarkana í flutningskerfi raforku er orkuframboð á Norðurlandi meira en sunnanlands og því hægt að gera langtímasamninga um forgangsorku við fyrirtæki í þeim landshluta,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að atNorth hafi verið viðskiptavinur Landsvirkjunar um árabil, en hér á landi reki fyrirtækið einnig gagnaver í Hafnarfirði og Reykjanesbæ sem og í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi.

„Fyrir tveimur árum gerðu atNorth og Landsvirkjun allt að 5 MW forgangsorkusamning samhliða því að atNorth hóf rekstur á Akureyri. Nýr samningur felur í sér viðbótarmagn og lengir samningstímann, en gagnaverið mun alls hafa 12 MW til umráða frá Landsvirkjun fyrir starfsemi sína á Akureyri.“

Gervigreind og gagnageymsla

Landsvirkjun segir gagnaverin hafa umbreytt starfsemi sinni undanfarið. Megináherslan sé nú á gervigreind og þjónustu við viðskiptavini sem þurfa gagnageymslu og mikla reiknigetu.

„Þessi umbreyting gagnaveranna er í takt við stefnu Landsvirkjunar um að styðja við stafræna vegferð samfélagsins.“

Tækniframfarir og vaxandi þörf fyrir stafræna innviði er sögð gera gagnaversstarfsemi að spennandi atvinnugrein sem vænst sé að muni vaxa margfalt á við aðra geira á næstu árum.

„Íslensk gagnaver hafa samið við stór alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir, t.d. á sviði loftslagsrannsókna, fjármálaútreikninga, bílahönnunar og erfða- og líftækni.“

Landsvirkjun bendir á að gagnaverin hýsi nær alla stafræna innviði Íslands. Allar vefsíður og smáforrit séu hýst í gagnaverum og flestir Íslendingar noti því gagnaver á hverjum degi.

Haft er eftir Tinnu Traustadóttur, framkvæmdastjóra sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, að gervigreind og öflugur gagnaversiðnaður geti haft mikla þýðingu fyrir alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands.

Tinna Traustadóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.

„Kapphlaupið er hafið og þjóðir heims reyna nú að laða tækifæri til sín í þróun, vinnslu og hagnýtingu gervigreindar. Nýr raforkusamningur við gagnaver atNorth á Akureyri er gott skref í uppbyggingu þessa mikilvæga framtíðariðnaðar hér á landi,“ segir hún.