Jón Ingi Þrastarson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa. Hann situr í framkvæmdastjórn félagsins og kemur í stað Gísla Þórs Arnarsonar sem lét af störfum hjá félaginu í vor.
Í tilkynningu Samskipa kemur fram að Jón Ingi hafi starfað hjá félaginu frá 2013 og þekki rekstur þess vel, hvort heldur sem er frá sjónarhóli sölu, þjónustu, eða umsvifa í alþjóðlegu umhverfi.
„Hann hefur um árabil starfað hjá Samskipum í Rotterdam í Hollandi. Þar stýrði hann lengi þjónustu Samskipa við íslenska markaðinn og Færeyjar, en síðustu ár hefur hann verið forstöðumaður Global Forwarding,“ segir í tilkynningunni.
Haft er eftir Birki Hólm Guðnasyni, forstjóra Samskipa á Íslandi, að fyrstu vikurnar hafi Jón Ingi verið með annan fótinn í Rotterdam, en nú sé þeim vistaskiptum lokið.
„Við bjóðum hann hjartanlega velkominn heim og hlökkum til að vinna að því með honum að efla innanlandsflutninga framtíðarinnar,“ segir Birkir.
Jón Ingi lauk Executive MBA námi við Rotterdam School of Management á síðasta ári, en hann er einnig með BA-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst frá 2012.
„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og hlakka til að takast á við þau verkefni sem bíða við að byggja upp sterkt innanlandskerfi Samskipa sem þjónar viðskiptavinum enn betur með skýrri framtíðarsýn, auknu þjónustustigi og sterkari tengingu við alþjóðlegar lausnir fyrirtækisins,“ segir hann.