Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi dregist saman um 1,9 prósent að raunvirði á öðrum ársfjórðungi 2025 miðað við sama tímabil 2024. Í birtingu stofnunarinnar á þjóðhagsreikningum á öðrum ársfjórðungi þessa árs segir að framlag utanríkisviðskipta vegi þyngst í samdrættinum, en aukinn halli á vöru- og þjónustuviðskiptum valdi því að framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar sé neikvætt um 5,8 prósent á öðrum ársfjórðungi.
„Aukin þjóðarútgjöld vega á móti samdrætti í utanríkisviðskiptum en fyrsta mat gerir ráð fyrir að fjármunamyndun hafi aukist um 8,3%, einkaneysla um 3,1% og samneysla um 0,3%, allt að raunvirði. Að teknu tilliti til birgðabreytinga er áætlað að þjóðarútgjöld á öðrum ársfjórðungi hafi aukist um 3,9% að raunvirði miðað við sama tímabil fyrra árs.“
Þegar leiðrétt hefur verið fyrir árstíðabundnum sveiflum áætlar Hagstofan að landsframleiðsla hafi dregist saman um 0,7 prósent að raunvirði samanborið við fyrsta ársfjórðung 2025. Og að fyrstu sex mánuði ársins hafi landsframleiðslan aukist um 0,3 prósent að raunvirði, samanborið við landsframleiðslu fyrstu sex mánuði ársins 2024.
Einkaneysla jókst um 3,1 prósent
„Einkaneysla á öðrum ársfjórðungi jókst um 3,1% að raunvirði miðað við sama tímabili fyrra árs. Innlend neysla jókst almennt þar sem vöxtur var í kaupum heimilanna á þjónustutengdum neysluvörum.“
Fram kemur að kaup heimilanna á bifreiðum hafi aukist annan árfjórðunginn í röð eftir samdráttarskeið síðustu misseri.
„Einnig var töluverður vöxtur í einkaneyslu vegna útgjalda Íslendinga á ferðalögum erlendis ásamt vægum vexti í húsnæðislið.“
Samneysla jókst um 0,3 prósent
Þá er samneysla hins opinbera talin hafa aukist um 0,3 prósent að raunvirði á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra.
„Að nafnvirði er talið að samneyslan hafi aukist um 9,2% frá fyrra ári en á sama tíma er áætlað að verðbreyting hafi verið um 8,8% sem veldur 0,3% magnbreytingu.“

Fjármunamyndun jókst um 8,3 prósent
Fjármunamyndun er sögð talin hafa aukist um 8,3 prósent að raunvirði á öðrum ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung fyrra árs. Þar af er talið að fjármunamyndun atvinnuveganna hafi aukist um 13,6 prósent að raunvirði og fjármunamyndun hins opinbera um 6,1 prósent, á meðan fjármunamyndun íbúðarhúsnæðis hafi dregist saman um 8,9 prósent á sama tímabili.
„Síðustu þrjá ársfjórðunga hefur fjármunamyndun atvinnuveganna aukist talsvert vegna umtalsverðs innflutnings á tölvubúnaði fyrir gagnaver. Nokkur óvissa er sem fyrr um fjármunamyndun hins opinbera í niðurstöðum annars ársfjórðungs.“
Aukinn halli á utanríkisviðskiptum
Hagstofan áætlar einnig að vöru- og þjónustuviðskipti við útlönd hafi verið neikvæð um 73,4 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi sem sagður er vera töluvert meira halli en á sama ársfjórðungi síðasta árs þegar hallinn nam 22,9 milljörðum króna.
Aukinn halli á utanríkisviðskiptum hafi þannig neikvæð áhrif á landsframleiðsluna á öðrum ársfjórðungi um 5,8 prósent.
Birgðabreytingar drógust saman um 11 milljarða
Þá hafi heildarverðmæti birgða lækkað um 10,9 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2025 miðað við fyrsta ársfjórðung.
Mest vægi hafi neikvæð breyting í sjávarútvegi haft, en hún hafi numið 10,3 milljörðum króna. Þrátt fyrir það sé samdrátturinn minni en áður hafi sést á öðrum ársfjórðungi undangenginna ára.
Olíubirgðir eru sagðar hafa aukist um 321 milljón króna, en birgðir í áli, álafurðum og kísilmálmi dregist saman um 991 milljónir króna. Framlag birgðabreytinga til hagvaxtar á öðrum ársfjórðungi 2025 hafi verið 0,1 prósent.
4,1 prósent samdráttur vinnumagns milli ára
„Áætlað er að heildarfjöldi unninna stunda hafi dregist saman um 4,1% á öðrum ársfjórðungi 2025 samanborið við annan ársfjórðung 2024. Hér er rétt að setja fyrirvara um að þessi gögn eru ekki árstíðaleiðrétt og hafa páskar mikil áhrif á ársfjórðungslegar tölur. Páskar voru núna á öðrum ársfjórðungi en á fyrsta ársfjórðungi árið 2024.“
Hagstofan stefnir að því að birta árstíðaleiðréttar tölur um vinnumagn samhliða næstu birtingu þjóðhagsreikninga í lok nóvember.
Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman
Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman að raunvirði um 0,7 prósent á öðrum ársfjórðungi 2025 miðað við fyrsta ársfjórðung 2025, samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar.
„Einkaneysla jókst um 0,5% að árstíðaleiðréttum mælikvarða, samneysla dróst saman um 0,3%, og fjármunamyndun hækkaði um 3,9%. Á sama tímabili minnkaði árstíðaleiðréttur útflutningur um 3,0% en innflutningur jókst um 1,4%.“
