Krónan hefur tekið höndum saman við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Pikkoló um afhendingu netpantana í kældum afhendingarstöðvum Pikkoló á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kemur í tilkynningu að samstarfið geri fólki sem pantar í gegnum Snjallverslun Krónunnar mögulegt að sækja pantanir sínar í afhendingarstöðvar Pikkoló hvenær sem er sólarhringsins.
„Stöðvarnar eru staðsettar í Vatnsmýri, Háaleiti og við Hlemm í Reykjavík, auk Hæðasmára í Kópavogi og hyggst Pikkoló opna fleiri slíkar stöðvar á næstunni með það að markmiði að fleiri geti nýtt sér þjónustu Pikkoló í sínu nærumhverfi,“ segir í tilkynningunni.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, er sögð spennt fyrir samstarfinu sem rími vel við markmið Krónunnar um að einfalda líf viðskiptavina og nýta tæknina til að bæta upplifun og stuðla að sjálfbærari framtíð.
Hún segir Krónuna sjá mikil tækifæri í samstarfinu við Pikkoló, sem hafi „gjörbreytt leiknum“ með því að auðvelda neytendum að nálgast mat- og dagvöru í nærumhverfi sínu með snjallari og umhverfisvænni hætti.
„Með þessu bætast við þjónustu okkar fjórar afhendingarstöðvar sem er frábært því við finnum að eftirspurnin eftir sveigjanleikanum sem í þessu felst er svo sannarlega til staðar. Það er okkar draumur að íbúar á landsbyggðinni fái einnig að njóta sömu þjónustu í framtíðinni og þar með fá betra aðgengi að matvöru á samkeppnishæfu verði,“ segir Guðrún.
Þá er haft eftir Rögnu M. Guðmundsdóttur, annars stofnanda og framkvæmdastjóra Pikkoló, að afhendingarstöðvar Pikkoló séu staðsettar með það í huga að auðvelda fólki að nálgast matarsendingar, svo sem við stærri vinnustaði og þétta íbúakjarna. Með þessu megi spara fólki bílferð í matvörubúð á háannatíma.
Ragna segir Krónuna hafa verið í fararbroddi við innleiðingu snjallra lausna til að þjónusta viðskiptavini og að gaman verði að fylgjast með þróun samstarfsins og sjá hvort það leiði út fyrir höfuðborgarsvæðið.
„Kerfi Pikkoló eru hönnuð með það í huga að lágmarka óþarfa dreifingu matvara með því að samnýta sendingar á stöðvarnar og á sama tíma leitast við að útrýma röðum og bið í verslunum. Frá því að við opnuðum fyrstu afhendingarstöðina okkar við Grósku fyrir tveimur árum, hefur Pikkoló sparað þúsundum notenda sporin og bjóðum við því viðskiptavini Krónunnar velkomna í hóp ánægðra notenda Pikkoló,“ segir hún.
