Rarik samstæðan tvöfaldaði hagnað sinn milli ára fyrstu sex mánuði ársins samkvæmt nýbirtu árshlutauppgjöri. Reikningar Rarik fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2025 voru samþykktir á fundi stjórnar 21. ágúst síðastliðinn.
Hagnaður Rarik samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2025 nam 1.494 milljónum króna, samanborið við 690 milljónir króna á sama tímabili árið 2024.
Haft er eftir Magnúsi Þór Ásmundssyni forstjóra Rarik í tilkynningu félagsins að árangur fyrri hluta ársins staðfesti að félagið standi á traustum grunni.
„Bættar aðstæður á raforkumarkaði spila þar inn í en einnig hafa verið tekin stór skref í að bæta rekstur og auka skilvirkni kerfisins, meðal annars með nýjum tæknilausnum og njótum við afrakstursins. Við höfum tvöfaldað hagnað milli ára og styrkt handbært fé, sem eykur svigrúm til áframhaldandi fjárfestinga í orkuskiptum og kerfisuppbyggingu. Þetta eru lykilskref til að tryggja örugga orkuafhendingu til framtíðar.“
Helstu breytingar á milli ára eru sagðar auknar tekjur af dreifingu raforku og jákvæð afkoma hjá Orkusölunni, en hærri flutningsgjöld og raforkukaup samstæðunnar eru sögð skýra hærri rekstrargjöld að mestu.
Fram kemur í tilkynningu að rekstrartekjur hafi aukist um 19,7 prósent frá fyrra ári og numið 14,1 milljarði króna, samanborið við 11,8 milljarða 2024.
„Aukningin skýrist einkum af hærri tekjum í dreifingu raforku, þar sem verðskrárbreytingar Landsnets stóðu fyrir um helmingi hækkunarinnar. Þá hafði einnig jákvæð áhrif að enginn orkuskortur var á tímabilinu, sem leiddi til aukinnar sölu á ótryggri orku. Tekjur af raforkusölu hækkuðu umtalsvert á milli ára,“ segir þar.
Rekstrargjöld námu 11,2 milljörðum króna, sem er aukning um milljarð frá fyrra ári, eða sem svarar 9,3 prósentum.
„Stærsti hluti hækkunarinnar er til kominn vegna aukins flutningskostnaðar frá Landsneti og orkukaupa frá Landsvirkjun. Þessir liðir námu samtals um 4,7 milljörðum króna á tímabilinu. Annar rekstrarkostnaður hækkaði einnig, einkum vegna aukins viðhalds og bilanaviðgerða.“
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4,8 milljörðum króna, sem er 47 prósenta aukning frá fyrra ári þegar EBITDA var 3,3 milljarðar króna og jafngildir 34,3 prósentum af tekjum. Handbært fé frá rekstri nam 3,7 milljörðum króna, samanborið við 2,4 milljarða á sama tímabili í fyrra.
„Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2,9 milljörðum króna, sem er tæplega tvöföldun frá sama tímabili á síðasta ári (2024: 1,6 ma.kr.). Fjármagnsliðir námu 1,1 milljarði króna (2024: 0,7 ma.kr.) og vegur þar þyngst gengistap á skuldabréfaeign.“
Heildareignir samstæðu Rarik námu 104,5 milljörðum króna í lok júní og jukust um 1,2 milljarða króna frá áramótum. Heildarskuldir námu 38,4 milljörðum króna, en eigið fé var 66,1 milljarður króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar í lok júní er því sagt 63,3 prósent, samanborið við 62,9 prósent í árslok 2024.
Fjárfestingar á tímabilinu eru sagðar hafa numið 3,5 milljörðum króna, þar af um 3 milljarðar í uppbyggingu og endurnýjun dreifikerfisins.
„Rarik heldur áfram að styðja við orkuskipti og styrkingu innviða með fjárfestingum í dreifikerfinu. Hlutfall jarðstrengja í kerfinu er nú yfir 81% og stefnt er að áframhaldandi jarðstrengjavæðingu og uppbyggingu til að mæta auknum afhendingarkröfum.“
Horfur fyrir árið 2025 eru sagðar jákvæðar.
„Samstæðan stendur frammi fyrir umfangsmiklum fjárfestingum og því er mikilvægt að viðhalda sterkum rekstrarárangri. Fjárfestingaáætlun ársins gerir ráð fyrir um 8,8 milljörðum króna í fjárfestingar.“