Vaxtalækkunarferli Seðlabankans á enda runnið

Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er í takti við spár greiningaraðila, sem gerðu ráð fyrir óbreyttum vöxtum.

Samhliða vaxtaákvörðun gaf Seðlabankinn út rit sitt Peningamál. Mynd/samsett

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í dag ákvörðun um óbreytta stýrivexti, í 7,5 prósentum.

Fram kemur í yfirlýsingu nefndarinnar að allir nefndarmenn hafi stutt ákvörðunina.

„Verðbólga var 4% í júlí og minnkaði um 0,2 prósentur frá mánuðinum á undan. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans eykst hún aftur á næstu mánuðum en tekur síðan að hjaðna er kemur fram á næsta ár. Óvissa um verðbólguhorfur er þó áfram mikil,“ segir í yfirlýsingunni.

Í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka segir að stýrivextir séu nú óbreyttir í fyrsta sinn í eitt ár. Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir óbreyttum vöxtum fram á næsta ár.

„Nefndin hafði áður lækkað vexti í fimm ákvörðunum í röð, eða frá því í október í fyrra. Vaxtalækkunarferlið hefur nú verið sett á ís. Ákvörðunin er í samræmi við birtar spár sem allar gerðu ráð fyrir óbreyttum vöxtum. Allir nefndarmenn studdu ákvörðunina og er yfirlýsing peningastefnunefndar nær óbreytt frá því í maí,“ segir Greining Íslandsbanka.

Þá segir að verðbólguspá Seðlabankans hafi versnað verulega hvað nærhorfur varði, miðað við spána frá því í maí.

„Bankinn spáir að verðbólga verði 4,5% á síðasta fjórðungi þessa árs sem er talsvert meira en áður var gert ráð fyrir. Verðbólga verður því talsvert meiri á fyrri hluta spátímans og spáir bankinn 4,2% verðbólgu að meðaltali í ár, 3,6% á næsta ári og 2,6% árið 2027.“

Þetta er sagt í takti við nýlega verðbólguspá Greiningar, þar sem einng var spáð 4,5% verðbólgu á lokafjórðungi ársins.

„Við erum þó svartsýnni varðandi verðbólguhorfur til lengri tíma og gerum ekki ráð fyrir verðbólgu við markmið á spátímanum.“