Kaffivagninn, elsti starfandi veitingastaður á Íslandi, opnar í dag fyrir gesti og gangandi eftir gagngerar endurbætur, endurhönnun og endursköpun, að því er fram kemur í tilkynningu. Vagninn hafi verið hluti af veitingasögu lands og þjóðar frá opnun árið 1935.
„Að baki opnuninni stendur veitingamaðurinn Axel Óskarsson, matreiðslumaður og reynslubolti í ferðaþjónustu, sem hefur síðustu ár sérhæft sig í heildarupplifun kröfuharðra erlendra ferðamanna og samhliða rekið veitingahúsið Öðling í golfskálanum Oddi ásamt eiginkonu sinni Katrínu Ósk Aldan. Jóhann Jónsson, matreiðslumaður á Laugaási í yfir tvo áratugi, stendur jafnframt vaktina úti á Granda með þeim.“
Fram kemur að hugmyndasmiður og hönnuður staðarins sé Sólveig Andersen iðnhönnuður, en innandyra hafi allt verið uppfært og endurnýjað, um leið og tryggt hafi verið að andinn og sálin í húsinu yrði áfram til staðar, enda saga staðarins samofin sögu borgarinnar og kynslóðanna.
„Kaffivagninn var stofnaður árið 1935 af Bjarna Kristjánssyni og var bókstaflega kaffivagn sem staðsettur var á horni Pósthússtrætis og Tryggvagötu. Guðrún Ingólfsdóttir keypti vagninn af Bjarna í byrjun sjötta áratugar síðustu aldar, en hann var þá á Grandagarði og komust mest 15 manns þar inn. Fastagestir voru þá helst sjómenn og hafnarverkamenn sem mættu í bítið, enda var Reykjavík á þessum tíma ein stærsta verstöð landsins. Þá kom Guðrun upp fyrsta björgunarhringnum í tengslum við staðinn og þar var einnig eini síminn á Grandanum lengi vel og var hann mikið notaður til ýmissa samtala. 1975 komst Kaffivagninn í núverandi húsnæði, sem nú hefur verið endurnýjað.“
Axel Óskarsson, veitingamaður segir að í Kaffivagninum hafi kynslóðirnar mæst og alist upp hlið við hlið áratugum saman.
„Það er mikill heiður að fá að taka þátt í að tryggja að svo verði áfram. Við höfum gert staðinn fallega upp, sett upp glæsilega og girnilega matseðla fyrir hádegi og kvöld og óvíða er útsýnið skemmtilegra að auki en einmitt héðan. Ég hlakka til að taka á móti gestum á Kaffivagninum og bjóða þeim í lystaukandi ferðalag,“ segir hann.
Góður matur og góður andi séu hans ær og kýr.
„Og hér mun ég standa vaktina með nýjan og glæsilega hádegismatseðla, kvöldmatseðla og allt þar á milli og geri allt til að tryggja einstaka og góða upplifun á þessum elsta veitingastað landsins.“
