Íslensk verðbréf hafa lokið fjármögnun á nýjum sjóði sem ber heitið SIV Alternative Credit Fund.
Fram kemur á heimasíðu Íslenskra verðbréfa að um sé að ræða sérhæfðan sjóð sem komi að fjármögnun fyrirtækja, en heildaráskriftarloforð sjóðsins nemi rúmum fimm milljörðum króna.
„Sjóðurinn hefur víðtækar heimildir við lánsfjármögnun fyrirtækja en fjárfestar í sjóðnum eru stofnanafjárfestar auk annarra fjárfesta,“ segir þar.
Sjóðstjórar SIV Alternative Credit Fund eru Anna Kristjánsdóttir og Þorkell Magnússon, forstöðumaður sjóðastýringar Íslenskra verðbréfa. Auk þeirra eru í fjárfestingateymi sjóðsins Sigurður Ottó Þorvarðarson og Guðrún Una Valsdóttir.
„Það er ánægjulegt að ljúka fjármögnun sjóðsins og veita þannig fjárfestum aðgengi að lánamarkaði sem er áhugaverður. Um er að ræða ört vaxandi markað sem er til þess fallinn að veita fjárfestum aukna ávöxtun og áhættudreifingu í eignasöfnum sínum,“ segir Þorkell Magnússon, forstöðumaður sjóðastýringar Íslenskra verðbréfa hf.

Eins er haft eftir Arnóri Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Íslenskra verðbréfa að stofnun SIV Alternative Credit Fund sé mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu á Íslenskum verðbréfum.
„Þá er stofnun sjóðsins hluti af áherslum Íslenskra verðbréfa í að byggja upp öfluga starfsemi og þjónustu um fjármögnun fyrirtækja og er ánægjulegt að sjá það traust sem fjárfestar sýna félaginu,“ segir hann.