Íslenska fjártæknifyrirtækið Handpoint hefur verið selt til bandaríska greiðslutæknifyrirtækisins Electronic Payments Inc. (EPI), sem sagt er meðal stærstu færsluhirða í Bandaríkjunum.
„Handpoint hefur verið frumkvöðull á heimsvísu í posagreiðslulausnum til tengingar við önnur hugbúnaðarkerfi. Félagið hefur frá árinu 2014 þróað alhliða greiðsluþjónustu sem er í notkun í þremur heimsálfum og hundruðir milljarða króna flæða um kerfi Handpoint á hverju ári,“ segir í tilkynningu Handpoint.
Haft er eftir Davíð Guðjónssyni, framkvæmdastjóra og stofnanda Handpoint, að salan sé viðurkenning á tæknilegu forskoti fyrirtækisins á alþjóðlegum markaði.

„Ég vil þakka starfsfólkinu, meðstofnenda mínum, Þórði H. Þórarinssyni, fjárfestum sem hafa stutt félagið ötullega í gegnum tíðina, sem og öflugri stjórn – og þar sérstaklega Þórði Magnússyni, stjórnarformanni – fyrir einstakt framlag, góð ráð og dyggan stuðning í gegnum tíðina. Með sölunni tryggjum við að lausnir Handpoint komist í hendur 1.500 sölumanna í Bandaríkjunum og að félagið geti þannig vaxið enn hraðar með greiðari aðgangi að stærri markaði og dreifileið,“ segir hann.
Þá er vitnað í Þórð Magnússon, stjórnarformann Handpoint, sem segir um hafa verið að ræða skemmtilega vegferð á öflugum samkeppnismarkaði þar sem tækniþróun hafi verið hröð.
„Handpoint hefur alla tíð verið í fararbroddi í þeirri tækniþróun. Það er bæði dýrt og tímafrekt að byggja upp alþjóðlegt dreifikerfi. Þegar fyrirtæki hefur náð ákveðnu þroskastigi þarf annaðhvort að stækka með yfirtökum eða sameinast þeim sem þegar hafa dreifikerfið. Með þessum samruna fær Handpoint aðgang að öflugu dreifikerfi EPI og getur þannig vaxið enn hraðar,“ segir Þórður.
Handpoint rekur skrifstofur í fjórum löndum, en megnið af starfsfólkinu er á Spáni. Helstu markaðir eru sagðir Bandaríkin, Kanada, Bretland og Króatía.
„Lausnir félagsins eru m.a. í notkun á leikjum í NBA- og NFL-deildinni í Bandaríkjunum, á hótelum, veitingastöðum, apótekum og veslunarmiðstöðvum í meira en tíu Evrópulöndum svo fátt eitt sé nefnt.“
Fram kemur að allir starfsmenn Handpoint komi til með að halda áfram störfum hjá sameinuðu fyrirtæki.
Frekari upplýsingar um EPI, sem stofnað var árið 2000 í Bandaríkjunum, er að finna á vef fyrirtækisins: electronicpayments.com
Þá má kynna sér Handpoint á vefnum handpoint.com.