Ástrós Björk og Arnór ráðin til Fossa fjárfestingarbanka

Ástrós Björk Viðarsdóttir verkefnastjóri og Arnór Brynjarsson sérfræðingur hjá Fossum fjárfestingarbanka.
Ástrós Björk Viðarsdóttir verkefnastjóri og Arnór Brynjarsson sérfræðingur hjá Fossum fjárfestingarbanka. Mynd: Fossar fjárfestingarbanki

Fossar fjárfestingarbanki hefur ráðið tvo nýja starfsmenn á svið fyrirtækjaráðgjafar bankans. Ástrós Björk Viðarsdóttir er nýr verkefnastjóri og Arnór Brynjarsson sérfræðingur.

„Við bjóðum Ástrós og Arnór hjartanlega velkomin til starfa. Hjá Fossum bætast þau í reynslumikinn og samheldinn hóp starfsfólks, sem einbeitir sér í að veita faglega og framúrskarandi fjármálaþjónustu. Við hlökkum til samstarfsins við þau,“ segir Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.

Ástrós Björk er í tilkynningu sögð búa að yfir tuttugu ára reynslu á fjármálamarkaði, aðallega í fyrirtækjaráðgjöf þar sem hún hafi stýrt og tekið þátt í fjölmörgum veigamiklum verkefnum í íslensku atvinnulífi. Eins hafi hún reynslu sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri, meðal annars sem fjármálastjóri fasteignafélagsins Íþöku.

„Á árunum 2004 til 2013 starfaði Ástrós í Landsbankanum, fyrst við greiningu á fyrirtækjum og efnahagsmálum en síðar í fyrirtækjaráðgjöf. 2013 færði hún sig yfir í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og starfaði þar til 2021.“

Ástrós er sögð með grunn og framhaldsmenntun í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa lokið námi í verðbréfaviðskiptum.

Þá segir að Arnór komi til Fossa frá KPMG í Kaupmannahöfn þar sem hann hafi starfað við fyrirtækjaráðgjöf á árunum 2022-2025. Þar áður hafi hann starfað sem greinandi hjá Copenhagen Offshore Partners, á fjármálasviði Arion Banka og sem dæmatímakennari við Háskólann í Reykjavík.

„Arnór er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavik og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Copenhagen Business School. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.“