Nýjar tölur sýna að erlend netverslun er enn á uppleið

Eftir fyrstu sex mánuði þessa árs stendur erlend netverslun í 15,8 milljörðum króna samanborið við rúma 13 milljarða króna á sama tímabili í fyrra.

Mynd: Emiliano Vittoriosi - Unsplash

Erlend netverslun jókst um rúman fimmtung á milli ára samkvæmt nýjum tölum Rannsóknarseturs verslunarinnar (RSV).

RSV tekur mánaðarlega saman tölur um erlenda netverslun Íslendinga. Fram kemur á vef rannsóknarsetursins að nú hafi verið birtar tölur júnímánaðar þar sem enn megi sjá mikila aukningu í erlendri netverslun. Aukningin nemu 28 prósentum frá sama tíma í fyrra.

„Sé horft í aukningu frá síðasta mánuði nemur hún tæpum 6,8%. Erlend netverslun í júní nam rúmum 3 milljörðum,“ segir á vef RSV.

Þá kemur fram að þegar bornir séu saman fyrstu sex mánuðir ársins 2025 við sama tímabil 2024 megi sjá að aukning á erlendri netverslun nemi 20,7 prósentum og standi í 15,8 milljörðum króna, samanborið við rétt rúma 13 milljarða í fyrra.

„Haldi þessi þróun áfram má gera ráð fyrir að erlend netverslun á árinu nái 36 milljörðum í lok árs.“

Mynd: RSV