Íslandsbanki spáir aukinni verðbólgu með haustinu

Ársverðbólga mun aukast lítillega í ágúst gangi spá Íslandsbanka eftir. Útlit er fyrir að verðbólga muni svo aukast enn frekar á næstu mánuðum og mælast 4,6 prósent í nóvember.

Verðbólguspá. Samsett mynd.

Vísitala neysluverðs (verðbólguvísitalan) hækki um 0,2 prósent í ágúst frá fyrri mánuði, gangi eftir spá greiningardeildar Íslandsbanka. Verðbólga fer þá úr 4,0 prósentum í 4,1 prósent og um leið aftur yfir 4 prósent vikmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands.

„Útlit er fyrir að ársverðbólga muni aukast enn frekar á næstu mánuðum,“ segir í greiningu bankans. „Spá okkar gerir ráð fyrir 4,6 prósenta verðbólgu í nóvember.“

Húsnæðisliðurinn er sagður skýra mánaðarhækkunina í ágúst að mestu. Einnig vegist á útsölulok annars vegar og lækkun flugverðs hins vegar.

Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 28. ágúst næstkomandi.

Alla greiningu Íslandsbanka er að finna HÉR.