Greiðslukortavelta landsmanna var 3,1 prósent meiri núna í júní en í júní í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis, að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans. Þá dróst kortavelta innanlands saman um 0,3 prósent að raunvirði á milli ára, en erlendis jókst hún um 14,6 prósent á föstu gengi.
„Verulega aukin kortavelta Íslendinga erlendis helst í hendur við verulega fjölgun utanlandsferða á þessu ári. Það sem af er ári hafa utanlandsferðir Íslendinga verið um 22 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Í júlímánuði voru utanlandsferðir Íslendinga um 6 prósent fleiri en í júlí í fyrra. Í þessu samhengi ber að hafa í huga að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem eru notuð á ferðalögum til útlanda en einnig í erlendri netverslun.“
Fram kemur í umfjöllun hagdeildar bankans að heildarkortavelta hafi aukist á milli ára í hverjum einasta mánuði sem af er ári.

„Á fyrstu sex mánuðum ársins er heildarkortaveltan um 5 prósent meiri en á sama tímabili árið 2024.“
Þróun kortaveltu er sögð gefa góða vísbendingu um þróun einkaneyslu, þótt kortaveltan sveiflist þó nokkuð meira.
„Undanfarið hefur kortavelta aukist „á mann“, þar sem kortavelta hefur aukist umfram fjölgun landsmanna á síðustu mánuðum.“

Í greiningu bankans segir jafnframt að þótt neysla aukist og utanlandsferðum fjölgi virðist heimili landsins að jafnaði ekki hafa gengið verulega á sparnað.
„Innlán heimilanna halda áfram að aukast að raunvirði og samhliða virðist tiltölulega lítið um yfirdrátt.“
Þá segir að neysluaukningin sé athyglisverð í ljósi hás vaxtastigs, en skýrist líklega að miklu leyti af vaxandi kaupmætti.
„Launavísitalan hefur hækkað um 8,1 prósent á síðustu tólf mánuðum, þó nokkuð umfram verðlagshækkanir. Í júní var kaupmáttur 4,9 prósent meiri en í júní í fyrra. Síðustu misseri hefur hækkunartakturinn þó róast smám saman en í lok árs 2022 fór tólf mánaða hækkunin yfir 12 prósent.“
Um leið bendir hagdeild bankans á að þó svo laun haldi áfram að hækka umfram verðlag megi greina merki um að eftirspurn eftir starfsfólki hafi farið dvínandi. Þetta megi til dæmis lesa út úr könnun meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækjanna.
„Nú segjast 18,5 prósent svarenda telja vanta starfsfólk og hlutfallið hefur ekki verið jafn lágt síðan í byrjun árs 2021. Til samanburðar var hlutfallið í kringum 54 prósent um mitt ár 2022.“
Atvinnuleysisstigið er líka sagt bera þess merki að lítillega hafi slaknað á spennu á markaðnum, þó því fari fjarri að spennan sé á hröðu undanhaldi.
„Á síðasta ári var skráð atvinnuleysi að meðaltali 3,5 prósent, það sem af er þessi ári hefur meðaltalið verið 4,0 prósent. Á þessu ári hefur atvinnuleysi verið 0,3-0,4 prósentustigum yfir því sem það var í fyrra.“
