Hugverkaiðnaður lykillinn að auknum útflutningi

Samtök iðnaðarins benda á þátt nýsköpunar og hugverkaiðnaðar í bættum horfum fyrir lánshæfi ríkissjóðs hjá Fitch Ratings.

Miðborgin í Reykjavík.
Stjórnarráðshúsið og Lækjarbrekka í miðbæ Reykjavíkur. Mynd: ÓKÁ

Stuðningur og hvatar sem styðja við nýsköpun búa að baki betri horfum fyrir lánshæfi ríkissjóðs hjá alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækinu Fitch Ratings að mati Samtaka iðnaðarins (SI).

Samtökin benda á í færslu á vef sínum að Fitch Ratings hafi uppfært horfur fyrir lánshæfi ríkissjóðs Íslands úr stöðugum í jákvæðar.

„Lánshæfiseinkunnin A er óbreytt, en breytingin á horfunum endurspeglar traust á áframhaldandi styrkingu efnahagslífsins. Samtök iðnaðarins fagna uppfærsla Fitch á horfum Íslands í jákvæðar og telja samtökin það vera afrakstur stórhuga frumkvöðla og stefnumörkunar stjórnvalda sem hafa með skattahvötum ýtt undir fjárfestingu í rannsóknum og þróun, með öðrum orðum í nýsköpun,“ segir þar.

Vitnað er í greiningu Fitch um að jákvæðar horfur endurspegli að stoðum efnahagslífsins sé að fjölga, meðal annars vegna vaxtar í hugverkaiðnaði, í greinum með mikla framleiðni s.s. í lyfjaiðnaði, upplýsingatækni og líftækni. Sömuleiðis sé bent á vaxandi starfsemi gagnavera hér á landi á Íslandi, sem styrki útflutningstekjur og búi til verðmæt störf.

„Jákvæðar horfur auka líkur á hækkun lánshæfiseinkunnar Íslands á komandi árum. Slíkt myndi þýða hagstæðari lánskjör fyrir ríkissjóð, fyrirtæki og heimili, og stuðla að aukinni fjárfestingu og uppbyggingu.“

Segja iðnaðinn lykilþátt

Vitnað er til samtals Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra SI, og Benedikts Gíslasonar, forstjóra Arion banka, á Iðnþingi 2023 um hversu þjóðhagslega mikilvægt það væri að byggja upp blómlegan hugverkadrifinn iðnað á Íslandi og hvernig það ætti að hækka lánshæfiseinkunn Íslands og bæta vaxtakjör.

„Nýjasta mat Fitch staðfestir þá sýn – að vaxandi hlutdeild hugverkaiðnaðar og gagnavera sé að styrkja íslenskan efnahag og auka alþjóðlegt traust á landinu.“

SI segja hugverkaiðnað hafa alla burði til að verða verðmætasta stoð útflutnings Íslands í lok þessa áratugar.

„Lítið og opið hagkerfi eins og Ísland á allt undir sterkum og fjölbreyttum útflutningi. Útflutningurinn þarf að vaxa ef við ætlum að standa undir áframhaldandi öflugu velferðarsamfélagi.“ 

Mat Samtaka iðnaðarins er að stærsta tækifærið í þessum efnum sé í hugverkaiðnaði en með honum verði íslenskt hagkerfi sífellt meira drifið áfram af fjárfestingu í nýsköpun í stað takmarkaðra náttúruauðlinda.

„Að sama skapi verða stjórnvöld að auka samkeppnishæfni annarra útflutningsgreina til að styrkja efnahag Íslands enn frekar nú þegar óvissa ríkir á alþjóðamörkuðum og viðskiptakjör versna. Framleiðsla verðmæta og sala á erlenda markaði er undirstaða lífskjara í landinu og því geta verri viðskiptakjör leitt til lakari lífskjara,“ segir í umfjöllun SI.