Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð um 44,2 milljarða króna samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 34,1 milljarð króna í júlí 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.
„Fluttar voru út vörur fyrir 72,4 milljarða króna fob í júlí 2025 og inn fyrir 116,6 milljarða cif (110,6 milljarða króna fob),“ segir í frétt Hagstofunnar.
Hagstofan segir að vöruviðskiptajöfnuðurinn í júlí síðastliðnum hafi því verið tíu milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári.
„Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 483,5 milljarða króna sem er 115,5 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.“
Um leið kemur fram að verðmæti útflutnings frá Íslandi hafi aukist um þrjú prósent á tólf mánaða tímabili, á gengi hvors árs. Hann hafi verið 971,1 milljaður króna og því aukist um 29,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
„Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2025 var 9,7 milljörðum króna minni (12%) en í júlí 2024, fór úr 82,2 milljörðum króna í 72,4 milljarða.“
Iðnaðarvörur voru 54 prósent alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um sex prósent samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
„Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra stóð nánast í stað í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.“

Verðmæti innflutnings jókst um 11 prósent
Þá kemur fram í bráðabirgðatölum Hagstofunnar að verðmæti vöruinnflutnings hafi numið 116,6 milljörðum króna í júlí 2025 samanborið við 116,3 milljarða í júlí 2024 og því nánast staðið í stað.
„Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.454,5 milljarður króna og jókst um 145,4 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 11% á gengi hvors árs fyrir sig.“
Samdráttur hafi verið í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum. Mesta aukning í innflutningi hafi verið í fjárfestingarvörum sem hafi aukist um 40 prósent.
„Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings tölvuvara hjá fyrirtækjum sem reka gagnaver í landinu.“
Samantektina alla má finna á vef Hagstofunnar.