Yrkir eignir hefur gengið frá kaupum á lóð við Urriðaholtsstræti 3 í Garðabæ, þar sem félagið kemur til með að byggja nýja verslun fyrir Krónuna ásamt skrifstofuhúsnæði. Fram kemur í tilkynningu Yrkis að kaupverð lóðarinnar nemi 137 milljónum króna, með fyrirvara um samþykki deiliskipulags.
„Aðgengi að Urriðaholtsstræti 3 verður gott fyrir íbúa hverfisins sem hafa kallað eftir matvöruverslun í hverfið. Á svæðinu verður atvinnustarfsemi bæði fyrir stærri og minni fyrirtæki. Meðal annars verða í boði á þessu svæði, sem nú er í uppbyggingu, litlar einingar sem hentað geta fyrir ýmsa þjónustu við íbúa,“ segir þar.
Hverfið er sagt hannað til að falla vel að náttúrunni sem umlyki þessa uppbyggingareiti og ítrustu kröfur sagðar gerðar um hönnun og skipulag.
Öflugt vaxtarsvæði

Þá segir að í Urriðaholti sé byggt á þeirri hugsjón að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar búi í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Mun það vera í samræmi við áherslur Yrkis og Krónunnar um umhverfisvæna starfsemi og sjálfbærni.
„Urriðaholt er öflugt vaxtarsvæði og við sjáum mikla möguleika í samspili íbúabyggðar, þjónustu og atvinnuhúsnæðis á svæðinu,“ segir Óðinn Árnason, framkvæmdastjóri Yrkis eigna.
Þróunarlóðir undir íbúðabyggð
Eins kemur fram að Yrkir hafi selt þróunarlóðirnar við Skógarsel 10 og Stóragerði 40 í Reykjarvík til byggingafyrirtækisins Sérverks ehf., með fyrirvara um samþykki deiliskipulags.
„Söluverð nam 1.010 milljónum króna og verður bókfært í bækur Festi, móðurfélags Yrkis eigna, þegar fyrirvörum verður aflétt.“
Á þessum lóðum voru áður reknar bensínstöðvar N1, en í samræmi við samkomulag við Reykjavíkurborg og stefnu borgarinnar um að fækka bensínstöðvum, er sagt að þær verði nú nýttar undir íbúðabyggð. Er þetta sagt marka stór skref í uppbyggingu á fyrrum bensínstöðvalóðum í umsjón Yrkis.
„Þetta eru tímamót í umbreytingu eldri þjónustulóða yfir í íbúðabyggð og við erum stolt af því að þessi þróun verði brátt að veruleika í samstarfi við Reykjavíkurborg og reyndan verktaka,“ segir Óðinn.
„Nú munu þessar lóðir í framtíðinni iða af lífi og uppfylla þarfir fjölbreyttra fjölskyldna fyrir húsnæði.“