Verðbólga mælist 4,0 prósent

Hagfræðingar Landsbankans segjast ekki telja að verðbólga komist undir fjögurra prósenta efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans í ár.

klink - coins
Mynd: Katharina Kammermann/Unsplash.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,0 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,0 prósent, samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofunnar.

Fram kemur að vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2025, sé 658,6 stig og hafi hækkað um 0,32 prósent milli mánaða. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er sögð 528,5 stig og hækkaði um 0,32 prósent frá síðasta mánuði.

Hagstofan bendir á að sumarútsölur séu víða í gangi og að verð á fötum og skóm hafi lækkað um 4,8 prósent, sem lækki vísitöluna um 0,18%. Eins hafi verð húsgagna, heimilisbúnaðar og fleiri hluta lækkað um 2,2 prósent sem hafi 0,10 prósenta áhrif til lækkunar á vísitölu neysluverðs.

Á sama tíma hafi kostnaður við húsnæði, hita og rafmagn aukist um 0,4 prósent, sem valdi 0,13 prósenta hækkun á vísitölunni og verð á flugfargjöldum til útlanda hafi hækkað um 19,9 prósent sem valdi 0,48 prósenta hækkun á verðbólguvísitölunni.

„Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2025, sem er 658,6 stig, gildir til verðtryggingar í september 2025.“

Greiningardeild Landsbankans segir breytingu vísitölunnar hafa verið í samræmi við væntingar, en þar á bæ var spáð 0,26 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs á milli mánaða og 4,0 prósenta verðbólgu.

„Við teljum að verðbólga komist ekki undir 4,0% efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans í ár,“ segir í Hagsjá bankans.