Arion og Kvika óska eftir samtali við Samkeppniseftirlitið

Kvika banki Arion banki lógó
Kvika banki og Arion banki tilkynntu 6. júlí sl. að stjórnir félaganna hefðu ákveðið að hefja viðræður um sameiningu félaganna og hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis.

Arion og Kvika banki ætla að óska eftir forviðræðum við Samkeppniseftirlitið í ágúst, þar sem kynnt verða markmið með samruna fyrirtækjanna og ávinningur sem mun hljótast af honum, bæði fyrir viðskiptavini og íslenskan fjármálamarkað, eins og segir í tilkynningu. Vonast er til að forviðræður, samningagerð og áreiðanleikakannanir klárist á næstu mánuðum. Nú þegar eru áreiðanleikakannanir og samrunaviðræður milli félaganna hafnar.

Að því gefnu að forviðræður við Samkeppniseftirlitið gangi vel, verður samruninn tilkynntur formlega til eftirlitsaðila og síðar lagður fyrir hluthafafundi beggja félaga.

Þetta er einn umfangsmesti samruni sem ráðist hefur verið í á íslenskum fjármálamarkaði og má gera ráð fyrir að ferlið taki þó nokkurn tíma að mati stjórnenda bankanna. Reglulega verður greint frá stöðu mála og framvindu viðræðna eftir því sem við á og ástæða er til.