Landsvirkjun ætlar að selja skammtímaorku á torgum

Landsvirkjun tók fyrstu skref inn á skipulegan raforkumarkað í maí 2024, þegar fyrirtækið tók þátt í söluferli Vonarskarðs fyrir svonefndar langtímavörur, grunnorku og mánaðarblokkir.

Raflínur við Kambabrún. Mynd: Google Earth

Í haust ætlar Landsvirkjun að hefja sölu á skammtímaorku á markaðstorgum raforku, Vonarskarði og Elmu. Fram kemur í frétt fyrirtækisins að til þessa hafi Landsvikjun selt skammtímaorku á eigin viðskiptavef.

„Viðskipti á markaðstorgum með skammtímaorku hófust á Íslandi vorið 2024, þegar Vonarskarð hélt fyrsta söluferli stundarrafmagns. Elma, dótturfélag Landsnets, opnaði svo næstadagsmarkað að evrópskri fyrirmynd í mars 2025,“ segir á vef fyrirtækisins.

Fram kemur á vef Vonarskarðs að helstu viðskiptavinir markaðstorgsins séu annars vegar framleiðendur raforku, svo sem Landsvirkjun, Orka náttúrunnar, HS Orka og eigendur smærri virkjana, og hins vegar sölufyrirtæki sem kaupi raforku miklu magni í heildsölu og selja í smásölu til heimila og fyrirtækja.

Í frétt Landsvirkjunar kemur fram að til þessa hafi fyrirtækið ekki selt skammtímaorku á markaðstorgunum, heldur unnið að greiningum og annarri undirbúningsvinnu.

„Stefnt er að þátttöku hjá bæði Vonarskarði og Elmu frá komandi hausti. Framboð fer eftir stöðunni í kerfinu hverju sinni. Komi til þátttöku Landsvirkjunar á skammtímamarkaði leiðir það samhliða til endurskoðunar á sölufyrirkomulagi aflþjónustu.“

Eins og er kveðst Landsvirkjun selja skammtímaorku gegnum eigin viðskiptavef allt að 14 daga fram í tímann, en með tilkomu markaðstorga áformi fyrirtækið nú að færa sölu skammtímaorku þangað.

„Skammtímamarkaður getur verið skilvirk lausn til að miðla raforku, sér í lagi þegar eftirspurn er umfram framboð. Á sama tíma er brýnt að stjórnvöld tryggi orkuöryggi með fullnægjandi hætti,“ áréttar Landsvirkjun.

Þá segir að sala skammtímaorku innan dags verði áfram í boði í gegnum viðskiptavef Landsvirkjunar, það er að loknum öðrum viðskiptum í gegnum markaðstorg.