Í Hagsjá Landsbankans er bent á að þrátt fyrir að færri ferðamenn virðist hafa heimsótt Ísland það sem af er ári en á sama tíma í fyrra hafi erlend kortavelta aukist á milli ára. Það sama megi segja um útflutningstekjur af ferðaþjónustu. Hagfræðingar Landsbakans telja því ýmislegt benda til þess að erlendir ferðamenn hafi verið fleiri síðustu mánuði en talning Ferðamálastofu segir til um.
Í nýbirtri Hagsjá Landsbankans er bent á að rúmlega 721 þúsund ferðamenn hafi komið til landsins það sem af er ári, um 3,9 prósentum færri en á sama tíma í fyrra. En síðustu tvo mánuði hafi ferðamönnum reyndar fjölgað á milli ára.
„Í maí fjölgaði þeim um 1,3% og ferðamenn hafa ekki verið fleiri í maímánuði síðan 2018,“ segir í Hagsjánni.

Auknar tekjur þótt ferðamönnum fækki
„Þjónustuútflutningur ferðaþjónustugreina jókst á milli ára á fyrsta ársfjórðungi, samkvæmt nýlegum þjóðhagsreikningum Hagstofunnar, á föstu verðlagi. Ferðaþjónustan skilaði þannig meiri útflutningstekjum á sama tíma og erlendum ferðamönnum fækkaði, samkvæmt talningu Ferðamálastofu.“
Í stuttu máli segir hagdeild bankans gögnin benda til þess að í fyrra hafi hver ferðamaður að meðaltali eytt fremur litlum pening hér á landi og gist skemur en áður. Hins vegar hafi neyslugleðin aukist þó nokkuð í byrjun þessa árs. Þannig hafi kortavelta hvers og eins aukist nógu mikið það sem af er þessu ári til þess að skila auknum tekjum af ferðaþjónustu þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fækkað.
„Hugsanlega skýrist misræmi á milli fjölda ferðamanna og tekna af ferðaþjónustu af vanmati á fjölda. Við mat á fjölda erlendra ferðmanna sem heimsækja landið byggir Ferðamálastofa annars vegar á gögnum Isavia um heildarfarþegafjölda um Keflavíkurflugvöll, og hins vegar á eigin mati á skiptingu farþega eftir þjóðernum. Mat á þjóðerni byggir á úrtakskönnunum sem eru gerðar reglulega yfir mánuðinn. Þar til nýlega hefur þessi aðferð reynst vel: tölur um fjölda ferðmanna hafa alla jafna þróast við svipuðum hætti og aðrir mælikvarðar og því virst nokkuð réttar.“
Í Hagsjánni er bent á að umferð um Keflavíkurflugvöll, Íslendinga og útlendinga, hafi ekki verið meiri frá árinu 2018, samkvæmt gögnum Isavia. Þá sýni talning Vegagerðarinnar að umferð um þjóðvegi landsins fyrstu mánuði ársins hafi aukist á milli ára í öllum landshlutum, nema á Suðurlandi.
„Umferð jókst mest á Norðurlandi, eða um tæplega 7% á milli ára og um rúmlega 4% bæði á Vesturlandi og Austurlandi. Umferð hefur aukist minnst á á höfuðborgarsvæðinu, um tæpt prósent, og á Suðurlandi var umferð meira og minna óbreytt.“
Þá hafi velta hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu aukist að raunvirði milli ára í janúar og febrúar og gistinætur á gististöðum á Íslandi verið fleiri fyrstu fjóra mánuði ársins en á sama tíma í fyrra.
„Þótt við vitum hvorki hvernig umferðartölur né gistinætur skiptast eftir þjóðernum bendir hvort tveggja til aukinna umsvifa í ferðaþjónustu á Íslandi. Í ljósi þess að Íslendingar ferðast til útlanda sem aldrei fyrr er hálfólíklegt að þeir standi einnig fyrir fjölgun gistinótta og aukinni umferð hérlendis.“
Mælikvarðarnir eru sagðir í takt við aukna erlenda kortaveltu og vöxt í útflutningstekjum samkvæmt þjóðhagsreikningum. Telja megi því líklegt að ferðamenn hafi verið fleiri á fyrri hluta ársins en talning Ferðamálastofu gefi til kynna, eða þá að í fyrra hafi þeir verið færri en talningin gaf til kynna.
Ferðalög Íslendinga mögulega oftalin
„Því má bæta við ef fjöldi erlendra ferðamanna er vanmetinn, sem við teljum líklegt, þýðir það á móti að ferðir Íslendinga séu oftaldar, því sem fyrr segir liggur heildarfarþegafjöldi um flugvöllinn fyrir í tölum Isavia. Eins og við fjölluðum um í nýrri hagsjá um kortaveltu Íslendinga fóru tæplega 68 þúsund Íslendingar til útlanda í maí, 25% fleiri ferðir en í maí í fyrra og utanlandsferðir Íslendinga hafa aldrei verið fleiri í maímánuði.“
Bent er á að í apríl hafi Íslendingar slegið met í fjölda utanlandsferða í einum mánuði, og það sem af er ári hafi utanlandsferðir Íslendinga verið um 29 prósentum fleiri en á sama tíma í fyrra.
„Þótt við teljum ekki ólíklegt að ferðum Íslendinga hafi fjölgað í takt við stóraukna kortaveltu Íslendinga erlendis, kann fjölgunin að vera minni en tölurnar gefa til kynna.“

Í öllu falli er heildarmyndin sú, að mati hagdeildar Landsbankans, að ferðaþjónusta hafi vaxið fyrstu fimm mánuði ársins og ýmislegt sagt benda til þess að komur erlendra ferðamanna hafi verið vantaldar, og utanlandsferðir Íslendinga oftaldar.
„Eins og er virðast því tölur um fjölda ferðamanna ekki gefa nákvæma vísbendingu um stöðu ferðaþjónustunnar.“
