Flutt voru út rúmlega 624 þúsund tonn af sjávarafurðum árið 2024 sem er um 60 þúsund tonnum minna en árið 2023, að því er fram kemur í nýbirtum tölum Hagstofunnar. Að mestu er breytingin sögð stafa af aflabresti í loðnuveiðum.

Fram kemur að heildarútflutningsverðmæti hafi dregist saman um 1,8 prósent á milli áranna 2023 og 2024, farið úr tæpum 353 milljörðum króna árið 2023 í 347 milljarða ári seinna.
„Árið 2024 fékkst mest verðmæti fyrir frystar sjávarafurðir, um 150 milljarðar króna, en tæpir 94 milljarðar króna fyrir ísaðar afurðir. Þorskur var verðmætasta útflutningsafurðin, um 143 milljarðar.“
Þá segir að mest hafi verið flutt út af sjávarafurðum til Noregs árið 2024, tæpt 131 þúsund tonn að verðmæti 36 milljarða króna. Tæp 92 þúsund tonn voru flutt út til Bretlands að verðmæti 60 milljarða króna.

Sjá nánar í frétt Hagstofunnar.