Heilsa hefur ráðið Margréti Dagbjörtu Pétursdóttur og Helgu Guðrúnu Daðadóttur í lykilstöður innan fyrirtækisins.
Fram kemur í tilkynningu Heilsu að Margrét Dagbjört hafi verið skipuð markaðs- og viðskiptaþróunarstjóri Heilsu, ásamt því að hún leiði sókn á heilsuvörumerkinu Kulda sem Heilsa keypti fyrr á þessu ári.
„Margrét Dagbjört hefur starfað hjá Heilsu síðan árið 2020 þar sem hún hefur sinnt stöðum viðskiptastjóra og vörustjóra. Hún er með M.Sc. í markaðsfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í félagsfræði frá sama skóla,“ segir í tilkynningunni.
Þá er Helga Guðrún sögð hafa tekið formlega við hlutverki vörustjóra vítamína og bætiefna og komi meðal annars til með bera ábyrgð á vörum Gula miðans, vítamínlínu Heilsu.
Hún er sögð hafa starfað hjá Heilsu frá árinu 2022, þar sem hún leiddi áður þjónustu- og samfélagsmiðlamál fyrirtækisins og stýri áfram samfélagsmiðlum fyrirtækisins. Helga er með B.Sc. gráðu í næringarfræði frá Háskóla Íslands.
Haft eftir Katrínu Ýri Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Heilsu, að ómetanlegt sé fá að fylgjast með hæfileikaríku fólki vaxa í starfi.
„Bæði Margrét Dagbjört og Helga Guðrún hafa sýnt mikinn metnað og driftkraft síðan þær hófu störf hjá Heilsu og meðal annars hjálpað okkur að ýta undir áframhaldandi vöxt fyrirtækisins og standa við loforð okkar um að stuðla að bættri heilsu og vellíðan almennings. Við erum því afar spennt að fylgjast með þeim blómstra í nýjum störfum innan fyrirtækisins,“ segir hún.