Utanferðir Íslendinga valda halla á greiðslukortajöfnuði

Hagsjá Landsbankans bendir á að kortavelta hafi aukist um 6,8% á milli ára í maí og um 21% erlendis. Það sem af er ári hefur kortavelta aukist um 5,5% frá sama tímabili í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis.

Hraðbanki í útlöndum.
Aukin kortavelta Íslendinga utan landsteinanna veldur auknum greiðslukortahalla, samkvæmt Hagsjá Landsbankans. Mynd: Alexandros Giannakakis-Unsplash

Íslendingar hafa aldrei farið í fleiri utanlandsferðir í maímánuði en nú í ár, að því er fram kemur í nýrri umfjöllun Hagsjár Landsbankans. Greiðslukortajöfnuður hafi verið neikvæður um 4,2 milljarða króna sem sé töluvert meiri halli en í maí í fyrra.

Í Hagsjánni segir að greiðslukortavelta landsmanna hafi verið 6,8% meiri núna í maí en í maí í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Þá þá hafi kortavelta innanlands aukist um 3,3% að raunvirði á milli ára og erlendis um 20,9% á föstu gengi.

„Verulega aukin kortavelta Íslendinga erlendis rímar við stórfellda fjölgun utanlandsferða á þessu ári. Það sem af er ári hafa utanlandsferðir Íslendinga verið um 29% fleiri en á sama tíma í fyrra. Í maí síðastliðnum voru utanlandsferðir Íslendinga um 25% fleiri en í maí á síðasta ári og ferðir í maímánuði hafa aldrei verið fleiri. Í þessu samhengi ber að hafa í huga að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem eru notuð á ferðalögum til útlanda en einnig í erlendri netverslun.“

Einkaneysla eykst minna

Kortavelta er í Hagsjánni sögð gefa ágæta vísbendingu um þróun einkaneyslu, þótt kortaveltan sveiflist þó nokkuð meira. Hagstofan birti einkaneyslugögn fyrir hvern ársfjórðung með tæplega tveggja mánaða töf en Seðlabankinn birti kortaveltugögn fyrir hvern mánuð, næsta mánuð á eftir.

„Heildarkortavelta hefur aukist á milli ára í hverjum einasta mánuði frá því í október 2023. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs hefur kortavelta aukist um 5,5% frá sama tímabili í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Einkaneysla jókst um 2,3% á fyrsta fjórðungi, samkvæmt þjóðhagsreikningum, en kortavelta jókst um 3,6%. Einkaneyslugögnin kunna að verða uppfærð með næstu birtingu þjóðhagsreikninga.“

Þróun kortaveltu beri áfram þess merki að meðalheimilið hafi að miklu leyti staðið af sér hátt vaxtastig án þess að hafa þurft að halda verulega aftur af neyslu. Á sama tíma og kortavelta hafi aukist og utanlandsferðum fjölgað hafi innlán heimila aukist talsvert.

„Samhliða virðist tiltölulega lítið um yfirdrátt sem er einnig merki um að heimilin standi vel. Því er líklega áfram innistæða til neyslu næstu misserin.“

Meiri kortaveltuhalli en í fyrra

Greiðslukortajöfnuður er sagður hafa verið neikvæður um rúmlega 4,2 milljarða króna í maí, sem sé töluvert meiri halli en í maí í fyrra þegar hann hafi numið tæplega 1,7 milljörðum króna. Aukinn halli skýrist af því að kortavelta Íslendinga erlendis hafi aukist umfram erlenda kortaveltu hér á landi.

„Greiðslukortajöfnuður hefur verið neikvæður frá því í október á síðasta ári. Almennt er afgangur á sumrin, frá maí eða júní í tengslum við háannatíma ferðaþjónustunnar sem snýst yfir í halla í október eða nóvember.“